Summary: | Ritgerð þessi fjallar um auðlindaskatta og fiskeldi, þar sem skoðuð er staða fiskeldis í heiminum og hagkvæmni mögulegrar auðlindaskattlagningar. Rannsóknin snýr að því að greina þær ýmsu aðferðir sem hægt er að skattlegja auðlindir og bera saman mismun í aðferðum landa í skattlagningu fiskeldis. Þau lönd sem borin verða saman eru Ísland, Færeyjar, Noregur og Síle. Tekin voru hálfstöðluð djúpviðtöl við stjórnanda fiskeldisfyrirtæki, fjármála- og efnahagsráðherra, hagfræðinga og rannsakendur til þess að fá nánari sýn á stöðu og framtíð fiskeldis á Íslandi. Rannsóknin varpar ljósi á mikilvægi þess að skattleggja atvinnugreinar á þann hátt sem skerðir ekki vöxt og fjárfestingar. Þessi rannsókn er framkvæmd til þess að segja til um hversu viðeigandi innleiðing auðlindaskatta í fiskeldi sé á Íslandi og hvaða lærdóm er hægt að draga af öðrum löndum.
|