Markaðssetning Íslands sem áfangastaður fyrir ferðamenn: Ný viðhorf og áherslur

Það er liðin rétt yfir um áratugur síðan Eyjafjallajökull gaus. Með því byrjaði hraður vöxtur í fjölda ferðamanna hérlendis. Markaðssetning Íslands sem áfangastaður fyrir ferðamenn hefur verið í mikilli uppsveiflu síðastliðin ár. Viðhorf og gildi breytast með tímanum og er þá mikilvægt að endurskoða...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Nikulás Búi Linduson Birgisson 1995-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Bachelor Thesis
Language:Icelandic
Published: 2023
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/44306
Description
Summary:Það er liðin rétt yfir um áratugur síðan Eyjafjallajökull gaus. Með því byrjaði hraður vöxtur í fjölda ferðamanna hérlendis. Markaðssetning Íslands sem áfangastaður fyrir ferðamenn hefur verið í mikilli uppsveiflu síðastliðin ár. Viðhorf og gildi breytast með tímanum og er þá mikilvægt að endurskoða og uppfæra markaðssetninguna til að tryggja að Ísland viðhaldi í vexti ferðamanna, með áherslu á sjálfbærni og samfélagsleg ábyrgð. Markmið verkefnisins er að skoða ástand og stöðu markaðssetningar Íslands sem áfangastað og hvernig hún hefur þróast í gegnum árinn. Hvar við erum stödd í dag og hvað mætti gera betur, með því að leggja frekari áherslu á sjálfbærni og viðhalda gæðum innan ferðaþjónustunnar. Það verður lögð áhersla á að skýra mismuninn milli sumars og vetur. Einnig verður stuðst við tól á borði við STP líkanið til þess að greina viðtölin og aðferð til þess að markaðssetja Ísland sem áfangastað. Rannsóknin mun styðjast við viðtöl sem megin rannsóknaraðferð frá fimm viðmælendum. Fjórir af þeim starfa hjá ólíkum ferðamálastofnunum sem gefur einstaka innsýn á umgjörðina í kringum ferðaþjónustuna. Niðurstöður rannsóknar sýna það, að ferðamálastofnanir og ferðatengd fyrirtæki hafi markaðssett Ísland á skynsaman hátt, þar sem áherslu hefur verið lögð á að sýna fram sjálfbærni, gæði og öryggi í markaðssetningu Íslands sem áfangastað ferðamanna. Þar að auki, hefur verið lögð áhersla á að markaðssetja Ísland sem áfangastað að vetri til. Líkt og áður fyrr, hefur Íslandsstofa alltaf verið með það til hliðsjónar svo hægt sé að fá betri dreifingu yfir allar árstíðir og landshluta.