Bíbí í Berlín, Brúðufjölskylda - efnisheimur og túlkun

Bíbí í Berlín skildi eftir sig umfangsmikið brúðusafn (yfir 100 brúður) sem nú er í eigu Þjóðminjasafns Íslands. Viðfangsefni þeirrar rannsóknar sem hér er byggt á felst í skráningu safnins, álitamálum því tengdu og uppsetningu sýningar um Bíbí og tilveru hennar. Dúkkusöfnun fólks er ekki óalgeng og...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Guðlaug Dröfn Gunnarsdóttir 1979-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Master Thesis
Language:Icelandic
Published: 2023
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/43829
Description
Summary:Bíbí í Berlín skildi eftir sig umfangsmikið brúðusafn (yfir 100 brúður) sem nú er í eigu Þjóðminjasafns Íslands. Viðfangsefni þeirrar rannsóknar sem hér er byggt á felst í skráningu safnins, álitamálum því tengdu og uppsetningu sýningar um Bíbí og tilveru hennar. Dúkkusöfnun fólks er ekki óalgeng og á sér mismunandi hliðar og uppruna. Bíbí dreymdi um að eignast eiginmann og börn – fjölskyldu. Í ævisögu sinni skrifar hún um drauma sem hefðu getað orðið. Draumarnir fengu að einhverju leyti útrás í fatasaum á dúkkurnar og garðyrkju. Þessa iðju stundaði hún ekki síst á meðan hún dvaldi á elliheimili sem ung manneskja og fann með því lífi sínu og draumum farveg. Sjálfsævisaga Bíbíar er öflugt verkfæri sem getur gagnast til að fræða og jafnvel breyta viðhorfum. Samtal við fólk með fötlun í upphafi sýningargerðar er því mikilvægt þar sem þarf að taka afstöðu, mið af viðfangsefninu og íhuga sanngildi. Leiðir að sýningarhandriti og efnisheimi Bíbíar eru margar og í þessari ritgerð verður fjallað um þá þætti sem leggja grunn að því handriti. Bíbí in Berlin left behind an extensive doll collection of over 100 dolls, now preserved by the National Museum of Iceland. Registration and exhibition of the doll collection forms the foundation of this research. People's doll collecting is not uncommon and differs in aspects and origins. Bíbí dreamed of having a husband and children - a family. In her autobiography she writes about dreams that might have been and these dreams were to some degree expressed in making clothes for her dolls and gardening. She practiced these crafts not least during her stay in the retirement home as a young person and thus found an output for her life and dreams. Bíbí's autobiography is a powerful tool that can be used to educate and alter attitudes. Thus, the importance of cooperation of people with disabilities and relevant groups when script making for intended exhibition as one must take a stand, include the subject, and strive for a truthful narrative. This essay will discuss the registration and ...