„Sækið Hildi ljósmóður“: Innsýn í líf og störf héraðsljósmóður á Austurlandi á seinni hluta 20. aldar: Tilfellarannsókn og frásagnargreining

Bakgrunnur: Ljósmæður eru ein elsta starfstétt á Íslandi en þrátt fyrir það er ljósmóðurfræðin ung fræðigrein innan háskólasamfélagsins. Eldri ljósmæður hafa verið fyrirmyndir yngri ljósmæðra og deilt með þeim þekkingu sinni og reynslu með því að segja sögur úr starfinu. Menntun, áherslur í starfi o...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Stella I. Steinþórsdóttir 1974-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2023
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/43761
Description
Summary:Bakgrunnur: Ljósmæður eru ein elsta starfstétt á Íslandi en þrátt fyrir það er ljósmóðurfræðin ung fræðigrein innan háskólasamfélagsins. Eldri ljósmæður hafa verið fyrirmyndir yngri ljósmæðra og deilt með þeim þekkingu sinni og reynslu með því að segja sögur úr starfinu. Menntun, áherslur í starfi og starfsumhverfi ljósmæðra hefur breyst samhliða breyttu samfélagi. Það er því mikilvægt fyrir þróun þekkingar í faginu að rannsaka líf og aðstæður ljósmæðra, heyra sögur ljósmæðra sem hafa staðið vaktina og nýta þekkingu þeirra. Tilgangur/markmið: Að skoða sögulegan bakgrunn og afla þekkingar um líf og störf héraðsljósmóður á seinni hluta 20. aldar sem starfaði í rúm 40 ár á Austfjörðum. Aðferð: Notast var við eigindlega aðferð, tilfellarannsókn með frásagnargreiningu. Gögnum var aflað með markmiðsúrtaki, opnu viðtali við eina ljósmóður. Niðurstöður: Greind voru þrjú aðalþemu ásamt undirþemum sem fjölluðu um: 1) Héraðsljósmóðurina á vaktinni, 2) Samskipti við samstarfsfólk og 3) Ljósmóðurina í samfélaginu. Út frá þemunum urðu til þrjár frásagnir. Þær endurspegla áskoranir í starfi ljósmóður í dreifbýlinu „Í lífsins ólgu sjó“, þar sem hún er „Eina ljósmóðirin á vaktinni“ og sú sem hefur sinnt og haldið utan um „ Þrjár kynslóðir kvenna“ með samfelldri þjónustu á leið þeirra í gegnum barneignarferlið. Frásagnirnar sýna m.a. hvernig ljósmóðirin tengdist náið sængurkonunum sínum og fjölskyldum þeirra á mikilvægustu stundum lífsins og hvernig þessi tengsl þróuðust í vináttu. Ályktun: Breytingar hafa orðið á möguleikum á samfelldri þjónustu frá tíma héraðsljósmæðra á 20. öld, sem rannsóknir sýna að hafi jákvæð áhrif á útkomu fæðinga. Mikilvægt er að horfa til baka og efla þetta þjónustuform, auka teymisvinnu milli heilbrigðisstarfsfólks innan og milli fæðingarstaða á jafnréttisgrundvelli, til hagsbóta fyrir skjólstæðinga barneignarþjónustunnar. Lykilorð: Ljósmóðurfræði, héraðsljósmóðir, dreifbýli, upplifun, lífssaga Background: Midwives are one of the oldest professions in Iceland, but despite that, midwifery is a young ...