Þar sem báran á berginu brotnar : viðhorf til náttúruverndar í Vestmannaeyjum með hliðsjón af nytjum og ferðamennsku

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Náttúruvernd hefur farið sívaxandi hér á landi síðustu ár fyrir tilstuðlan náttúruverndaráætlunar. Verkefni þetta fjallar um viðhorf Vestmannaeyinga til náttúruverndar, hvort að hún muni skaða eyjarnar eða verða þeim til bóta. Hvort virk...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Jóna Sveinsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2006
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/436
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Náttúruvernd hefur farið sívaxandi hér á landi síðustu ár fyrir tilstuðlan náttúruverndaráætlunar. Verkefni þetta fjallar um viðhorf Vestmannaeyinga til náttúruverndar, hvort að hún muni skaða eyjarnar eða verða þeim til bóta. Hvort virkilega þurfi að vernda einhverja hluta þeirra eða hvort staða verndurnar á eyjunum sé í góðum farvegi. Verkefnið er unnið með rýnihóp, samsettum af Vestmannaeyingum frá öllum stigum þjóðfélagsins, viðtölum við aðila innan veiðifélaga, tómstundabænda og ferðaþjónustuaðila. Einnig með gögnum sem fengin eru af netinu af opinberum síðum stjórnsýslustofnana og gögnum sem Vestmannaeyjabær lét í té. Segja má að skipta megi verkefninu upp í tvo megin kafla, nokkurskonar fræðikafla þar sem fjallað er um náttúruvernd almennt, lagaumhverfi, náttúruminjaskrá, heimsminjaskrá UNESCO, sjálfbæra þróun og komið fram með hugmyndir um hvernig megi meta virði lands. Seinni kaflinn greinir frá viðhorfi almennings til náttúruverndar, ferðaþjónustuaðila, aðila veiðifélaganna og viðhorf tómstundabænda til náttúruverndar. Viðhorf þessara aðila til náttúruverndar eru nokkuð svipuð þó svo að þarna sé fólk á öllum aldri á öllum stigum þjóðfélagsins. Telja allir að auka megi náttúruvernd í Vestmannaeyjum en þó ekki þannig að það skaði á einhvern hátt Vestmannaeyjar eins og þær eru í dag. Allir eru á einu máli hvað varðar skipulagðar ferðir í úteyjar þar sem erfitt yrði að festa þær við dagsetningu og tíma, því lending við eyjarnar er mjög háð veðri og sjólagi. Þó svo að blíða sé, sjór spegilsléttur og ekki bærist hár á höfði á Heimaey, getur verið ófært í úteyjarnar. Lykilorð : Vestmannaeyjar – Náttúruvernd – Ferðaþjónusta – Virði lands – Lundaveiðifélag – Tómstundabóndi – Sjálfbær þróun.