Aukin samfélagsþjónusta sem svar við löngum boðunarlista : Samfélagsþjónusta í stað boðunarlista

Í þessari ritgerð verður fjallað um samfélagsþjónustu, boðunarlista og áhrif þess að vera á boðunarlista. Markmiðið er að komast að lausn á því hvernig hægt er að stytta boðunarlista til muna umfram það sem kemur fram í nýju lögum um styttingu boðunarlista. Leitast verður við að svara rannsóknarspur...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Jóhanna Freyja Ásgeirsdóttir 2000-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2023
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/43583
Description
Summary:Í þessari ritgerð verður fjallað um samfélagsþjónustu, boðunarlista og áhrif þess að vera á boðunarlista. Markmiðið er að komast að lausn á því hvernig hægt er að stytta boðunarlista til muna umfram það sem kemur fram í nýju lögum um styttingu boðunarlista. Leitast verður við að svara rannsóknarspurningunum: Hvernig er hægt að nýta samfélagsþjónustu í meira mæli en gert er nú þegar til styttingu boðunarlista og hvernig getur aðkoma félagsráðgjafa stuðlað að styttingu boðunarlista og aukinni betrun þeirra sem fara í gegnum samfélagsþjónustu?. Skoðaðar verða kenningar tengdar aðkomu félagsráðgjafa í málaflokknum ásamt kenningu um stimplun. Á boðunarlista eru í dag 638 einstaklingar sem bíða þess að komast í fullnustu og er biðtíminn óhóflega langur en hann spannar að meðaltali 2,2 ár. Það sem einkennir þennan hóp er að skipting brota þeirra er sá sami og þeirra sem afplána með samfélagsþjónustu. Bæði í samfélagsþjónustu og þegar fólk er á boðunarlista er lítið utanumhald með þeim sem umræðir og ekki fæst fé til að halda námskeið og bjóða upp á ráðgjöf þannig að raunveruleg betrun geti átt sér stað. Það er kostnaðarsamt að hafa fólk í fangelsi en með því að nýta það fé til að efla samfélagsþjónustunnar, og með aðkomu félagsráðgjafa væri hægt að gefa fleirum kost á að afplána dóm sinn með samfélagsþjónustu og þar með stytta boðunarlista og stuðla að betrun.