Innleiðing hugmyndafræði Total Airport Management (TAM) á Keflavíkurflugvelli

Flugferðir eru almennar og þykja sjálfsagður ferðamáti. Margir flugvellir búa við takmarkaðar auðlindir (e. resources) þegar kemur að fjölda flugvélastæða og farþegahliða sem kallar á góða skipulagningu og upplýsingagjöf á milli hagaðila. En þar er að mörgu að hyggja og ýmislegt sem hefur áhrif á st...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Jóhanna María Gylfadóttir 1968-
Other Authors: Háskólinn á Bifröst
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2022
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/43521
Description
Summary:Flugferðir eru almennar og þykja sjálfsagður ferðamáti. Margir flugvellir búa við takmarkaðar auðlindir (e. resources) þegar kemur að fjölda flugvélastæða og farþegahliða sem kallar á góða skipulagningu og upplýsingagjöf á milli hagaðila. En þar er að mörgu að hyggja og ýmislegt sem hefur áhrif á stundvísi loftfara (e. aircraft) eða ferðalag farþegans, horfa þarf til þess í víðara samhengi. Í þessu verkefni var rýnt í innleiðingu hugmyndafræði Total Airport Management (TAM) á Keflavíkurflugvelli og rannsóknarspurningin sem leitað var svara við er: Hvaða skref þarf að taka til að þetta verði að veruleika? Rannsóknin var framkvæmd með eigindlegum viðtölum við sex innlenda og erlenda sérfræðinga sem þekkja til starfsemi flugvalla og hafa reynslu af innleiðingu hugmyndafræðinnar. Rýnt var í hugmyndafræðina sjálfa ásamt því sem farið var yfir fræðilegan bakgrunn breytingastjórnunar, væntingastjórnunar og innleiðingu þeirra. Eðli breytinga voru einnig borin saman við þekkt líkön breytingastjórnunar. Helstu niðurstöður eru þær að samhljómur er á milli fræða breytingastjórnunar og hugmynda viðmælenda um innleiðingu breytinga, en fylgja þarf þekktum líkönum að farsælum breytingum til að árangur sé í samræmi við væntingar. Travelling by air is taken for granted and thus is quite common. Many airports have limited resources when it comes to number of aircraft stands and passenger gates, which calls for good planning and reliable information sharing between stakeholders. On-time performance of an aircraft can be affected by various reasons and so can the passenger’s travel. In this research, the implementation of the concept of Total Airport Management (TAM) at Keflavík Airport was studied, and the research question was: What steps are needed to make this happen? The research was conducted through qualitative interviews with six internal and external experts who are familiar with airport operations and have experience with implementation of the concept. The concept itself was analysed together with the theoretical ...