„Hvar er nýja stjórnarskráin?“ Um áhrif mismunandi almenningssamráðs á tilraunir til að breyta stjórnarskrám

„Hvar er nýja stjórnarskráin?“ er setning sem vafalaust flest hafa heyrt eða séð á undanförnum árum. Þá er iðulega verið að vísa til frumvarps Stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá sem ráðið afhenti Alþingi fyrir meira en áratug síðan og hefur dagað uppi, þrátt fyrir að frumvarpið hafi orðið til í me...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ragnheiður I. Sigurgeirsdóttir 1996-
Other Authors: Háskólinn á Bifröst
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2022
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/43466
Description
Summary:„Hvar er nýja stjórnarskráin?“ er setning sem vafalaust flest hafa heyrt eða séð á undanförnum árum. Þá er iðulega verið að vísa til frumvarps Stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá sem ráðið afhenti Alþingi fyrir meira en áratug síðan og hefur dagað uppi, þrátt fyrir að frumvarpið hafi orðið til í merkilegu ferli sem fól í sér margskonar almenningssamráð. Í rannsókn þessari er athyglinni beint að áhrifum mismunandi almenningssamráðs á tilraunir til að breyta stjórnarskrám. Horft er til þriggja landa; Íslands, Írlands og Chile, og tilraunir þeirra til að breyta sínum stjórnarskrám bornar saman til þess að leita svara við því hvaða áhrif mismunandi samráðsaðferðir hafa á möguleikana á því að knýja fram stjórnarskrárbreytingar. Í framhaldi af því er spurt hvort aðferðafræðin sem notuð var hérlendis hafi átt þátt í því að stjórnarskrárbreytingar hafa dagað uppi og hvaða lærdóma Íslendingar geta dregið af stjórnarskrárbreytingaferli hinna landanna. Rannsóknin leiðir í ljós ýmsa veikleika í íslenska ferlinu, þó að margt hafi verið vel gert. Þá er því einnig gert skil að engin ein aðferð til samráðs við almenning er fullkomin eða fullnægjandi og fleira þarf til þess að tryggja að breytingar náist fram en að efnt sé til einhverskonar almenningssamráðs. Niðurstaða ritgerðarinnar er að mikilvægt sé að almenningur komi að breytingarferlinu og til þess að nauðsynlegt traust skapist milli þings og þjóðar þarf að vera nægur tími til verksins. Ennfremur að heppilegast sé að unnið sé með afmarkaða kafla eða einstaka greinar hverju sinni og að vænlegt sé að fara að fordæmi Íra og nýta slembivalin borgaraþing í slíku ferli. "Where is the new constitution?" is a phrase that most people in Iceland are familiar with. It usually refers to the Constitutional Council's bill for a new constitution, which the council handed over to the Icelandic Parliament, Alþingi, more than a decade ago but has since then not made any progress, despite the fact that the bill was created in a remarkable process that included many types of public ...