Áfangaheimili : hlutverk, aðgengi og framtíðarsýn.

Áhugi höfundar á eftirmeðferðarúrræðum vaknaði fyrst um vorið árið 2018 þegar hann kom að stofnun Minningarsjóðs Einars Darra. Hlutverk minningarsjóðsins er að vekja athygli á misnotkun á lyfseðilsskyldum lyfjum og öðrum vímuefnum á Íslandi og taka þátt í og stuðla að aukinni forvarnarfræðslu fyrir...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Óskar Vídalín Kristjánsson 1970-
Other Authors: Háskólinn á Bifröst
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2022
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/43465
Description
Summary:Áhugi höfundar á eftirmeðferðarúrræðum vaknaði fyrst um vorið árið 2018 þegar hann kom að stofnun Minningarsjóðs Einars Darra. Hlutverk minningarsjóðsins er að vekja athygli á misnotkun á lyfseðilsskyldum lyfjum og öðrum vímuefnum á Íslandi og taka þátt í og stuðla að aukinni forvarnarfræðslu fyrir börn, ungmenni og foreldra. Umræðan um bætt aðgengi og fjölbreyttari meðferðarúrræði var hávær. Áhugi höfundar á áfangaheimilum og eftirmeðferðarúrræðum jókst til muna eftir að hann lauk meðferð hjá SÁÁ við spilafíkn sem er skilgreindur fíknisjúkdómur haustið 2020 og hóf dvöl á áfangaheimili í Reykjavík í kjölfarið. Höfundur hefur því öðlast ákveðna reynslu af því að sækja um dvöl, stunda eftirmeðferðarúrræði og framfleyta sér á áfangaheimili. En að mati höfundar getur reynst mjög erfitt fyrir suma einstaklinga að hefja nýtt líf eftir meðferð við fíknisjúkdómum á viðeigandi meðferðarúrræðum. Félagsleg og fjárhagsleg staða getur verið mjög slæm og einnig andleg og líkamleg líðan. Heiti verkefnisins er „Áfangaheimili: Hlutverk, aðgengi og framtíðarsýn“. Höfundur mun leitast við að kanna hvert sé hlutverk áfangaheimila fyrir fólk með fíknisjúkdóma, hvort aðgengi að áfangaheimilum og eftirmeðferðarúrræðum sé jafnt fyrir alla óháð búsetu og hver sé framtíðarsýnin tengt þessum úrræðum. Skoðað verður sérstaklega hver sé aðkoma ríkis og sveitafélaga þegar kemur að þessum úrræðum, má þar nefna rekstur, fjárhagslegur stuðningur og hugsanlegur ávinningur. Author´s intrest in resources after rehabilitation for addicts was intrigued in the spring of 2019, when assisting the foundation of The Memorial fund of Einar Darri. The memorial funds agenda is to raise attention to the abuse of medical subscription drugs and other narcotics in Iceland, along with participating and contributing to higher awareness and acknowledgement about substance abuse for children, teenagers and parents. The discussion about better and more diverse rehabilitation quickly became more noticeable and loud. Author´s interest in halfway houses for addicts ...