Leiðsögn í leikskóla : áskoranir og tækifæri

Markmið rannsóknarinnar var að þróa móttökuáætlun fyrir nýja leiðbeinendur í leikskóla í Reykjavík og skoða hvaða leiðsögn deildarstjóri veitir nýjum leiðbeinendum. Tilgangurinn var að bæta leiðsögn leiðbeinenda í skólanum, efla deildarstjóra í leiðsögn og þannig efla fag¬mennsku hans. Rannsóknin by...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Linda Ósk Sigurðardóttir 1966-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2023
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/43431
Description
Summary:Markmið rannsóknarinnar var að þróa móttökuáætlun fyrir nýja leiðbeinendur í leikskóla í Reykjavík og skoða hvaða leiðsögn deildarstjóri veitir nýjum leiðbeinendum. Tilgangurinn var að bæta leiðsögn leiðbeinenda í skólanum, efla deildarstjóra í leiðsögn og þannig efla fag¬mennsku hans. Rannsóknin byggði á starfendarannsókn sem unninn var í einum leikskóla í Reykjavík, notaðar voru eiginlegar aðferðir við gagnaöflun. Starfendarannsóknin byggir á skráningum rannsakandans, sem er í stöðu deildarstjóra, á störfum sínum í gegnum rannsóknardagbók og samskiptaskráningu. Gagna var auk þess aflað með hálfopnum viðtölum við fimm deildar¬stjóra og þrjá leiðbeinendur sem starfa í samtals sjö leikskólum í Reykjavík, auk leikskólans þar sem starfendarannsóknin fór fram, sem jafnframt er í Reykjavík. Móttaka nýrra leiðbeinenda í leikskólum skiptir miklu máli og í rannsókninni kemur fram að deildarstjórum finnst aukið álag á deildina fylgja móttöku nýrra leiðbeinenda og að of oft sé móttakan ekki eins og hún á að vera samkvæmt ferlum leikskólana. Íslensk rannsókn sem gerð var 2022 sýndi fram á að flestir þeir sem fara í leikskólakennaranám á Íslandi eru þegar starfandi í leikskólum og flestir eru að vinna með náminu. Í leikskólum er mikil starfsmannavelta og kjölfesta skólanna er leikskólakennararnir. Þess vegna skiptir miklu máli að hvetja fleiri til þess að fara í leikskólakennaranám sem vonandi gæti leitt til minni starfsmannaveltu og betri leikskóla. Samkvæmt skýrslu sem Reykjavíkurborg lét gera 2018 töldu leikskólakennarar starfsmannaveltu vera einn helsta álagsþátt starfsins. Niðurstöður þessarar rannsóknar sýna að starfsumhverfi leikskólanna er mjög viðkvæmt og má ekki við miklum áföllum. Auk þess sýna niðurstöðurnar ekki síst fram á nauðsyn þess að efla og þróa móttökuáætlanir í leikskólum í Reykjavík með fjölbreyttum aðferðum sem styðja við starfsfólk skólanna í stað þess að auka álagið. Það kom skýrt fram að Reykjavíkurborg þarf að taka þátt í því að efla móttökuna, m.a. með því að fjölga leið-sagnarkennurum og bjóða ...