Námsefni sem ætlað er að auka orðaforða og lesskilning fjöltyngdra nemenda : greinargerð með námsefni

Undanfarin ár hefur fjöltyngdum nemendum fjölgað mikið í íslenska menntakerfinu. Grunnskólar landsins starfa eftir stefnunni skóli án aðgreiningar en sú stefna felur í sér að mæta eigi þörfum allra nemenda út frá stöðu þeirra. Þetta þýðir að mæta þarf hinum sívaxandi hóp fjöltyngdra nemenda út frá h...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hugrún Tanja Haraldsdóttir 1987-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Master Thesis
Language:Icelandic
Published: 2023
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/43406
Description
Summary:Undanfarin ár hefur fjöltyngdum nemendum fjölgað mikið í íslenska menntakerfinu. Grunnskólar landsins starfa eftir stefnunni skóli án aðgreiningar en sú stefna felur í sér að mæta eigi þörfum allra nemenda út frá stöðu þeirra. Þetta þýðir að mæta þarf hinum sívaxandi hóp fjöltyngdra nemenda út frá hverjum einstaklingi fyrir sig. Þrátt fyrir fögur fyrirheit um að auka eigi útgáfu sérsaminna námsgagna fyrir fjöltyngd börn er raunin sú að inni á vef Menntamálastofnunar er úrvalið sáralítið. Meistaraverkefni þetta er hugsað til þess að bæta úr þeirri þörf. Verkefnið er námsefni og greinargerð með því. Markmið námsefnisins er að auka við orðaforða og lesskilning fjöltyngdra barna. Það verður gert með því að nýta þær lestrarbækur sem nú þegar eru lesnar í skólum landsins. Niðurstöður greinargerðarinnar bera með sér að fjöltyngdir nemendur eigi rétt á námsefni við hæfi, námsefni sem styrkir þá í sínu íslenskunámi. Grunnskólar landsins eiga að undirbúa alla sína nemendur til þess að lifa og starfa í íslensku samfélagi. Til þess að geta gert það verður íslenskukunnátta nemenda að vera góð. Rannsóknir sýna að fjöltyngdir nemendur eru líklegri til að hætta í námi en jafnaldrar þeirra sem hafa íslensku sem móðurmál. Þetta má að einhverju leyti rekja til þess að þá vantar íslenskan orðaforða, ekki síst námsorðaforða. Orðaforði og lesskilningur er nátengdur og þegar námsefnið verður erfiðara með hverju árinu breikkar bilið á milli orðaforða fjöltyngdra nemenda og þeirra sem hafa íslensku sem móðurmál. Það er því von höfundar að námsefnið geti stuðlað að því að brúa þetta bil og aukið við orðaforða og lesskilning fjöltyngdra barna. In recent years, there has been an increase in multilingual students in the Icelandic education system. All primary schools in Iceland operate according to the policy of inclusion in the schools. The inclusive policy entails meeting the needs of all students, which means that the ever-growing group of multilingual students has to be met on an individual basis. Despite the thoughtful promises from ...