Viðhorf mótar verklag : upplifun framhaldsskólakennara af kennslu einhverfra nemenda með sértækan stuðning

Kennsla einhverfra framhaldsskólanemenda sem þurfa mikinn og sértækan stuðning hefur ekki verið rannsökuð mikið. Kennslu þeirra ber sjaldan á góma í samfélaginu og þá oftast tengt neikvæðri umræðu um einhvers konar úrræðaleysi. Tilgangur rannsóknarverkefnisins er að fá innsýn inn í aðstæður framhald...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ásta Birna Ólafsdóttir 1979-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2023
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/43396
Description
Summary:Kennsla einhverfra framhaldsskólanemenda sem þurfa mikinn og sértækan stuðning hefur ekki verið rannsökuð mikið. Kennslu þeirra ber sjaldan á góma í samfélaginu og þá oftast tengt neikvæðri umræðu um einhvers konar úrræðaleysi. Tilgangur rannsóknarverkefnisins er að fá innsýn inn í aðstæður framhaldsskólakennara sem kenna einhverfum nemendum með sértækan stuðning. Þátttakendur í rannsókninni voru sex þrautreyndir framhaldsskólakennarar á starfsbrautum í sex framhaldsskólum víðs vegar um landið. Rannsóknin byggir á fyrirbærafræðilegri nálgun og félagslegu sjónarhorni á fötlun. Tímahugtakið crip-tími sem varpar ljósi á sértæka upplifun fatlaðs fólks á tíma, er notað í gagnagreiningunni. Einnig lágstemmd nálgun sem er einstaklingsmiðuð leið til að takast á við óæskilega hegðun án þess að nota þvingun eða valdbeitingu. Tekin voru hálfstöðluð eigindleg viðtöl við þátttakendur á tímabilinu desember 2021 til febrúar 2022. Í niðurstöðum kom m.a. fram að viðhorf kennaranna til nemendanna var oftast jákvætt og þeir báru umhyggju fyrir nemendum sínum. Upplifun og líðan framhaldsskólakennaranna í rannsókninni var almennt góð og töldu kennararnir álagið í sinni vinnu oftast nær hæfilegt. Eins kom fram að þeir töldu starfið skapandi og fjölbreytt. Stundum upplifðu kennararnir sig ráðalausa þegar ekki gekk vel að mæta einhverfum nemendum með sértækan stuðning. Þar sem vel gekk var mannúðlegum aðferðum beitt og forðast var að nota þvinganir og valdbeitingu. Þeirri nálgun sem byggt var á í rannsókninni og fólst í að nota hugtökin crip-tími og lágstemmd nálgun eru nýmæli hér á landi. Bæði falla þau vel að aðstæðum nemendanna og gætu orðið gott innlegg í það að efla gæði kennslu og auka skilning á aðstæðum einhverfra nemenda með sértækan stuðning. The research literature in Iceland on teaching autistic upper secondary school students who need intensive and complex support is limited. The issue is rarely discussed in society, and then usually negatively with focus on lack of services. The purpose of this research project is to ...