Greining á Selfossi út frá skipulagshugmyndinni um 20 mínútna bæinn Kortlagning svæða eftir aðgengi að þjónustu í GIS og tillögur að skipulagi

Módernískt skipulag með bílmiðuðum ákvörðunum hefur verið einkennandi á Íslandi frá því um miðbik 20. aldar og hefur skilið eftir sig einhæf hverfi og dreifða byggð. Samgöngur eiga mikinn þátt í losun gróðurhúsalofttegunda og þar með hlýnun jarðar. Á síðustu árum eru alvarlegar afleiðingar loftslags...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Anne Steinbrenner 1979-
Other Authors: Landbúnaðarháskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2023
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/43380
Description
Summary:Módernískt skipulag með bílmiðuðum ákvörðunum hefur verið einkennandi á Íslandi frá því um miðbik 20. aldar og hefur skilið eftir sig einhæf hverfi og dreifða byggð. Samgöngur eiga mikinn þátt í losun gróðurhúsalofttegunda og þar með hlýnun jarðar. Á síðustu árum eru alvarlegar afleiðingar loftslagsbreytinga orðnar augljósar og samfélagið verður að aðlagast, svo skaðinn verði sem minnstur. Tækifærin liggja í ferðamátabreytingum til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Með því að hanna lifandi bæjarrými með áherslu á gönguvænni þar sem er stutt frá heimili í þjónustu, almenningssamgöngur og útivistarsvæði verður dregið úr akstursþörf. Skipulagshugmyndin og stefna um 20 mínútna bæinn kemur með tillögur um hvernig hið byggða umhverfi ætti að vera til að auka hlutdeild gangandi og hjólandi á Íslandi. Viðfangsefni rannsóknarinnar er að greina Selfoss út frá hugmyndinni, sérstaklega með tilliti til göngufjarlægðar að verslun og þjónustu. Aðgengi íbúa er kortlagt í GIS með netgreiningu og tillagan að aðalskipulagi fyrir Árborg borin saman við markmiðin úr tillögunni að landsskipulagsstefnu. Einnig var framkvæmd skoðanakönnun meðal íbúa á Selfossi varðandi ferðahegðun. Helsti ávinningurinn af þessari rannsókn eru tillögur fyrir sveitarfélagið Árborg um atriði sem ættu að gegna lykilhlutverki í skipulagi. Eftirfarandi skref voru nauðsynleg framlög til að þróa tillögurnar: a) túlkun á hugmyndinni um 20 mínútna bæinn og útfærsla hennar fyrir Selfoss, b) greining á dreifingu núverandi þjónustu og aðgengi íbúa, c) auðkenning á svæðum sem þarfnast betri skipulagningar, d) tillögur að staðsetningu á nýjum þjónustukjörnum, e) greining á þáttum sem ógna markmiðinu og f) greining á þörfum íbúa. Helstu niðurstöður eru þær að 45% Selfossbúa hafa takmarkaðan aðgang að þjónustu innan 10 mínútna göngufjarlægðar og 20% hafa einungis aðgengi að um helmingi af þjónustutegundunum. Þetta þýðir að ganga er oftast ekki raunhæfur ferðamáti, sem dregur úr sjálfstæði ýmissa hópa í samfélaginu. Mikil íbúafjölgun á stuttum tíma, uppbygging ...