Hugtakasafn ferðaþjónustunnar

Í þessari skýrslu verður farið yfir B.Sc. verkefnið sem ber heitið Hugtakasafn ferðaþjónustunnar. Verkefnið var unnið í Háskólanum í Reykjavík, haustönn 2022 í samvinnu við Kompás ehf. Hugtakasafn ferðaþjónustunnar er samansafn orða og hugtaka sem tengjast öll ferðaþjónustu á einn eða annan hátt. Þe...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Sindri Másson 2000-, Stefán Orri Eyþórsson 2000-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2022
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/43283
Description
Summary:Í þessari skýrslu verður farið yfir B.Sc. verkefnið sem ber heitið Hugtakasafn ferðaþjónustunnar. Verkefnið var unnið í Háskólanum í Reykjavík, haustönn 2022 í samvinnu við Kompás ehf. Hugtakasafn ferðaþjónustunnar er samansafn orða og hugtaka sem tengjast öll ferðaþjónustu á einn eða annan hátt. Þetta samansafn þekkingar gæti nýst vel bæði til kennslu og í starfi ef gott aðgengi að upplýsingunum væri tryggt. Markmið verkefnisins var að byggja framsækna veflausn sem færir Hugtakasafn ferðaþjónustunnar í nýjan og aðgengilegri búning. Verkefnið skiptist í nokkra hluta, sem eru upplýsingaviðmót þar sem notandi hefur aðgang að öllum hugtökunum á aðgengilegan máta, notendaviðmót þar sem notendur geta skráð sig inn og vistað orð á sitt heimasvæði, stjórnendaviðmót þar sem verkefniseigandi getur breytt innihaldi Hugtakasafnsins og prófaviðmót þar sem notendur geta búið til próf úr orðum Hugtakasafnsins og lagt þau fyrir aðra notendur. Þessi nýja umgjörð Hugtakasafnsins bætir aðgengi að upplýsingunum sem það hefur að geyma til muna. Auk þessa stuðlar verkefnið að varðveislu okkar dýrmæta tungumáls, ásamt því að vera hluti af vegferð þróunar íslenskrar máltækni. Kompás ehf.