Sveitarfélagið Árborg. Áhrif sameiningar á jaðarbyggðir

Viðfangsefni þessarar BA ritgerðar, er að skoða hvort íbúar jaðarbyggða í sveitarfélaginu Árborg finnist sem þeir séu látnir sitja á hakanum þegar kemur að félagsmálum og stjórnsýslu, og hvort of mikið sé einblínt á Selfoss, stærsta byggðarkjarna sveitarfélagsins. Til þess að komast inn í efnið mun...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hjalti Magnússon 1984-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2010
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/4323
Description
Summary:Viðfangsefni þessarar BA ritgerðar, er að skoða hvort íbúar jaðarbyggða í sveitarfélaginu Árborg finnist sem þeir séu látnir sitja á hakanum þegar kemur að félagsmálum og stjórnsýslu, og hvort of mikið sé einblínt á Selfoss, stærsta byggðarkjarna sveitarfélagsins. Til þess að komast inn í efnið mun ég skoða sveitarstjórnarstigið á Íslandi og rök með og gegn sameiningu. Til þess að skoða þetta þá styðst ég við könnun sem gerð var árið 2002 af Grétari Þór Eyþórssyni og Hjalta Jóhannessyni, sem þeir gáfu út í bókinni Sameining sveitarfélaga áhrif og afleiðingar rannsókn á sjö sveitarfélögum. Einnig framkvæmdi ég mína eigin könnun þar sem ég notaði 6 spurningar sem Grétar og Hjalti notuðu árið 2002 til að sjá hvort eitthvað hefði breyst á þessum tíma. Við framkvæmd könnunarinnar nota ég vefsíðuna www.ja.is og tók tilviljunar úrtak. Einnig styðst ég mikið við bækurnar Staðbundin stjórnmál, markmið og árangur sveitarfélaga og Íslenska stjórnkerfið eftir Gunnar Helga Kristinsson. Einnig notast ég mikið við tímaritið Sveitarstjórnarmál sem samband íslenskra sveitarfélaga gefur út. Í ritgerðinni sýni ég fram á það að íbúar jaðarbyggðanna í sveitarfélaginu Árborg telji sig sitja á hakanum bæði hvað varðar stjórnsýslu og félagsþjónustu, á meðan Selfyssingar, sem eru í stærsta byggðarkjarnanum, eru á öðru máli, þar sem þeim finnst allt vera í lagi. Þrátt fyrir óánægju jaðarbyggðanna er sameining réttlætanleg og mikilvæg fyrir sveitarfélög á Íslandi.