Summary: | Þetta lokaverkefnið er unnið út frá tillögu teiknistofunnar T.ark, frá árinu 2003, af leikskóla við Helgamagrastræti á Akureyri. Nemendi tekur við verkefni á frumstigi og á að fullklára verkið. Burðarvirki hússins er steypt og járnbent. Þak er annars vegar viðsnúið með torfi og hins vegar viðsnúið með grús. Leikskólinn er klæddur þremur klæðningum, timburklæðningu, smábáru og Cembrit klæðningu. Verkefnið var unnið eftir fösum byggingafræðinnar, þ.e. að afla gagna fyrir frumhönnun, fara í gegnum forhönnun og greina bygginguna, fullgera aðaluppdrætti, vinnu-, hluta- og deiliteikningar, verklýsingar, útboðsgögn og fl. sem nánar er fjallað um í viðaukum A, B, C og D.
|