Summary: | Í þessu lokaverkefni er tekin fyrir tillaga arkitektarstofunnar T.ark í hönnunarsamkeppni á nýjum leikskóla fyrir Seltjarnarnesbæ. Tillagan gerir ráð fyrir að leikskóli sé á tveimur hæðum að hluta til með bílageymslu undir smá hluta byggingarinnar. Verkefnið felst í því að taka verkefnið alla leið til enda með því að einnig halda í tillögu arkitekts. Farið var með verkefni í gegnum alla hönnunarfasa svo byggingin standist lög og reglur sem um hana gilda. Þessir fasar eru frumhönnun, forhönnun, aðaluppdrættir, verkteikningar og útboðsgögn. Þessi skýrsla inniheldur lýsingu á öllum þeim skrefum sem farið var í gegnum við gerð verkefnisins.
|