Skáld skapa borg: Flandrað um ljóðaslóðir Reykjavíkur

Ritgerð þessi er annar hluti lokaverkefnis til MA-prófs í hagnýtri menningarmiðlun við Háskóla Íslands. Hinn hlutinn er appið Ljóðradar sem gefur notendum tækifæri til þess að finna ljóð sem ort eru um ákveðna staði í Reykjavík. Í fyrri hluta ritgerðarinnar verður leitast við að svara þeirri spurnin...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Einar Björn Magnússon 1981-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2022
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/43123
Description
Summary:Ritgerð þessi er annar hluti lokaverkefnis til MA-prófs í hagnýtri menningarmiðlun við Háskóla Íslands. Hinn hlutinn er appið Ljóðradar sem gefur notendum tækifæri til þess að finna ljóð sem ort eru um ákveðna staði í Reykjavík. Í fyrri hluta ritgerðarinnar verður leitast við að svara þeirri spurningu hvernig skáld geta byggt borg, hvaða augum þau líta borgina og hvernig hugmyndir fólks um Reykjavík speglast í ljóðum sem ort eru um borgina. Þá er fjallað um staðarljóð og borgarljóð og rýnt í það hvað einkennir skáldskap um staði og borgir. Að lokum verða skoðuð ljóð frá tímum fyrstu borgarskáldanna, snemma á tuttugustu öld, til dagsins í dag. Nokkur valin skáld sem hafa gert Reykjavík að yrkisefni sínu með áberandi hætti verða sérstaklega tekin til umfjöllunar. Í síðari hluta ritgerðarinnar verður ferlinu við gerð Ljóðradarsins lýst og gerð verður grein fyrir því hvernig virkni hans mun verða þegar appið lítur dagsins ljós áður en langt um líður. This thesis comprises half of a master's degree in Applied Studies in Culture and Communication at the University of Iceland. The other half is the app Ljóðradar (Poetry Radar) that allows users to explore the city of Reykjavík and its literary landscape in a new and interactive way. In the first half of the thesis I explore how poets build cities through their use of language and imagery in their writing. I argue that poets do this with their keen observatory eye and metaphorical mind, thus contributing to the narrative and understanding of the urban landscape. I examine poetry of place and city poetry and focus on a few poets who we can call city poets, studying their work and considering the ways in which their writing reflects and engages with the city. In the latter half I describe the process of building the app Ljóðradar, explaining its functions and contribution to new knowledge.