Virði vímuefnaviðskipta í þjóðhagsreikningum metið og endurmetið

Löngum hefur verið reynt að áætla umfang vímuefnaneyslu einstaklinga og/eða hópa, enda eru vímuefni samfélagslegt mein. Þetta hefur ekki gengið þrautalaust vegna skorts á gögnum sem og vegna leyndar sem einkennir fíkniefnaviðskipti. Þær aðferðir sem algengast er að beita í mati á umfangi fíkniefnama...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Elvar Egilsson 1998-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2023
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/43098
Description
Summary:Löngum hefur verið reynt að áætla umfang vímuefnaneyslu einstaklinga og/eða hópa, enda eru vímuefni samfélagslegt mein. Þetta hefur ekki gengið þrautalaust vegna skorts á gögnum sem og vegna leyndar sem einkennir fíkniefnaviðskipti. Þær aðferðir sem algengast er að beita í mati á umfangi fíkniefnamarkaðar byggja á haldlagningu lögreglu á ýmsum vímuefnum sem og innlögnum á meðferðastofnanir og loks áætlunum um neysluhegðun einstaklinga. Þessar áætlanir geta verið byggðar á spurningakönnunum eða hreinum ágiskunum. Í þessari ritgerð verður farið yfir þessar matsaðferðir, kosti þeirra og galla en einnig hvernig Hagstofa reiknar einkaneyslu vímuefna í dag. Núverandi mat Hagstofu á einkaneyslu vímuefna er síðan borið saman við rannsóknir sem hafa verið gerðar á magni efnasambanda sem verða til við vímuefnaneyslu í skólpi í Reykjavík. Rannsóknir á slíkum efnasamböndum í skólpi eru ekki ný vísindi en hafa þó aðallega verið notaðar til að greina mun á neyslu milli landa og þéttbýliskjarna en einnig til að sjá breytingu á neyslu yfir tíma. Í þessari ritgerð voru rannsóknir á magni vímuefna í skólpi í Reykjavík ásamt gögnum um áætlaðan hreinleika vímuefna sem og gögn um meðalverð vímuefna notaðar til að áætla einkaneyslu vímuefna. Niðurstöður á mati á einkaneyslu vímuefna út frá skólprannsóknum reyndust töluvert hærri en mat Hagstofu. Frekari rannsókna er þó þörf á þessu sviði en með bættri tækni og frekari rannsóknum verður vafalaust hægt að fá betri mynd af vímuefnamarkaði.