Hvað er þetta VV? Hvernig lýsa döff þátttakendur á námskeiðum í gerð VV sagna þeim?

Ritgerðin „Hvað er þetta VV? Hvernig lýsa döff þátttakendur á námskeiðum í gerð VV sagna þeim?“ er lögð fram til BA-prófs í táknmálsfræði með leikskólakennarafræði sem aukagrein við Hugvísindasvið Háskóla Íslands. Hún var unnin með það að markmiði að koma á framfæri upplýsingum um hvað VV sögur eru,...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Anna Valdís Kro 1978-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2023
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/43084
Description
Summary:Ritgerðin „Hvað er þetta VV? Hvernig lýsa döff þátttakendur á námskeiðum í gerð VV sagna þeim?“ er lögð fram til BA-prófs í táknmálsfræði með leikskólakennarafræði sem aukagrein við Hugvísindasvið Háskóla Íslands. Hún var unnin með það að markmiði að koma á framfæri upplýsingum um hvað VV sögur eru, hvaðan þær koma og hvernig þær eru hluti af döff menningu hér á landi sem og annars staðar í heiminum. Eigindleg rannsókn var framkvæmd þar sem rætt var við níu döff þátttakendur á námskeiðum í gerð VV sagna sem fram fóru haustið 2021 og vorið 2022. Áhersla var lögð á að fá innsýn í þeirra upplifun af því hvað VV sögur eru og hvað þau nefndu í tengslum við VV sögur sem þeim fannst ólíkt því sem þau áttu að venjast í hversdagslegu samtali á íslensku táknmáli. Þá komu fram upplýsingar til umhugsunar fyrir rannsakanda sem mögulega tengjast reynslu viðmælenda af raddmálsstefnunni. Helstu niðurstöður sýna að VV sögur byggjast á þáttum sem öll táknmál, sem rannsökuð hafa verið, eiga sameiginlega og ber þar helst að nefna látbrigði, látbragð og persónusköpun. Bandaríski döff leikarinn Bernard Bragg setti fram þessa frásagnaraðferð árið 1967 og kallaði á ensku visual vernacular því hann sá fyrstur hvað táknmál og kvikmyndir eiga margt sameiginlegt. Sterk frásagnarhefð er innan döff menningar en þar sem heyrnarlaus börn eiga yfirleitt heyrandi foreldra flyst sú hefð milli kynslóða innan döff samfélagsins en ekki innan fjölskyldna sem er hin hefðbundna leið í samfélagi heyrandi fólks. This dissertation, What is visual vernacular? How do deaf participants at a workshop in creating visual vernacular describe it?, is submitted for a BA degree in Sign Language Studies with preschool teacher training as a minor subject at the School of Humanities at the University of Iceland. The goal of this dissertation is to present information about what visual vernacular is, its origin and how it is a part of Deaf culture in Iceland and around the world. Nine Deaf participants who attended workshops in creating visual vernacular in fall 2021 ...