"Við sættum okkur ekki við ofbeldi" : reynsla stjórnenda í grunnskólum Reykjavíkur

Niðurstöður rannsókna á erlendum vettvangi sýna að börn beita ofbeldi vegna vanlíðunar, geðrænna erfiðleika, skorts á viðeigandi bjargráðum, samskiptahæfni og fleiri þátta. Miklu skiptir að grunnskólinn hlúi vel að námi og velferð barna. Kennarar, starfsfólk skóla og stjórnendur bera því mikla ábyrg...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Soffía Ámundadóttir 1973-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Master Thesis
Language:Icelandic
Published: 2022
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/42945
Description
Summary:Niðurstöður rannsókna á erlendum vettvangi sýna að börn beita ofbeldi vegna vanlíðunar, geðrænna erfiðleika, skorts á viðeigandi bjargráðum, samskiptahæfni og fleiri þátta. Miklu skiptir að grunnskólinn hlúi vel að námi og velferð barna. Kennarar, starfsfólk skóla og stjórnendur bera því mikla ábyrgð þegar kemur að því að koma til móts við þarfir nemenda og hjálpa þeim að þroskast við öruggar aðstæður. Markmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á reynslu stjórnenda af nemendum sem beita ofbeldi í skólastarfi og hvaða verkfæri stjórnendur skólanna hafa til að leysa slík mál. Efninu verða gerð skil með fræðilegri umfjöllun um ofbeldi nemenda, skólamenningu, starfsumhverfi skólanna og eigindlegri rannsókn á reynslu skóla¬stjórnenda gagnvart málefninu. Rannsóknin byggir á sex viðtölum við stjórnendur í grunnskólum í Reykjavík sem valdir voru með tilgangsúrtaki. Stuðst var við aðferðir túlkandi fyrirbærafræðilegrar greiningar við greiningu rannsóknargagnanna, með það að markmiði að reynsla þátttakenda fengi að hljóma sem best í framsetningu niðurstaðna. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að stjórnendur upplifðu aukningu ofbeldis og alvarlegri birtingarmyndir samhliða ákveðnu úrræðaleysi. Fram kom að þeir upplifðu sig stundum óörugga og vonlitla í krefjandi aðstæðum með nemendum. Stjórnendur sögðu erfiðleika nemenda sem beita ofbeldi margþætta og að þörf væri fyrir heildrænan stuðning og lausnir. Stjórnendur töldu að það skorti miðstýrða verkferla, viðbragðsáætlanir, markvissari skráningu og öflugri fræðslu fyrir aðila skólasamfélagsins. Þeir upplifðu að starfsumhverfi skóla væri að ýmsu leyti ófullnægjandi, umræða á samfélagsmiðlum óvægin og flókið ferli að vinna úr grófum ofbeldismálum. Niðurstöðurnar varpa ljósi á mikilvægi þess að ofbeldi innan veggja skóla sé tekið föstum tökum, að faglegur stuðningur sé aukinn sem og mun markvissari aðkoma skólayfirvalda og annarra opinberra stofnana að málefnum nemenda sem beita ofbeldi. Niðurstöðurnar vekja upp áleitnar spurningar um ofbeldi nemenda og hvaða ...