Hjálparsíða - góð þjónusta í stafrænum heimi

Greinargerð þessi er hluti af lokaverkefni til M.A.- prófs í Hagnýtri menningarmiðlun frá Háskóla Íslands. Hluti af greinargerðinni eru notendarannsóknir fyrir ákvarðanatöku um hvort skynsamlegt væri fyrir Íslandsbanka að þróa hjálparsíðu sem yrði aðgengileg á ytri vef bankans. Höfundur starfar í ve...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Eygló Benediktsdóttir 1987-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2022
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/42800
Description
Summary:Greinargerð þessi er hluti af lokaverkefni til M.A.- prófs í Hagnýtri menningarmiðlun frá Háskóla Íslands. Hluti af greinargerðinni eru notendarannsóknir fyrir ákvarðanatöku um hvort skynsamlegt væri fyrir Íslandsbanka að þróa hjálparsíðu sem yrði aðgengileg á ytri vef bankans. Höfundur starfar í vefteymi Íslandsbanka og verður farið yfir hugmyndafræði sem vefteymið vinnur eftir við þróun nýrra lausna fyrir ytri vef bankans. Hugtakið notendaupplifun er skoðað vel og færð rök fyrir mikilvægi notendarannsókna við þróun stafrænna lausna. Farið verður nákvæmlega yfir framkvæmdir notendarannsóknanna og niðurstöður þeirra. Greinargerðinni fylgir þarfagreining fyrir hjálparsíðu Íslandsbanka og gróf hönnunarskissa af því hvernig svona vefsvæði gæti litið út. Miðlunarhluti verkefnisins er glærukynning á verkefninu, ætluð hagsmunaaðilum innan Íslandsbanka. This thesis is submitted in partial fulfilment of the Degree of Master of Practical Cultural Communication from the University of Iceland. It includes user research for decision-making on the practicability of developing a help page for Íslandsbanki Bank, made accessible on the bank's external website. The author is part of Íslandsbanki's web team, and the philosophy used by the team when developing new solutions for the bank's external website will be reviewed as part of this thesis. The concept of user experience is closely examined, and arguments are made in support of the theory that user research provides an essential foundation for the development of digital solutions. The execution of user research and their results are reviewed in detail. A needs analysis for Íslandsbanki's help page and a rough design sketch of the site is also included. A slide presentation of the project, intended for Íslandsbanki's stakeholders, is provided for the communication part of the project.