Summary: | Útflutningur hesta frá Íslandi hefur aukist þegar litið er til seinustu tíu ára og áhugavert er að skoða hvort aukning sé á útflutningi á keppnishestum. Markmið þessarar rannsóknar er að bera saman hæstu einkunnir keppnishestanna sem fluttir voru út árin 2010, 2015 og 2020 og meta þróun á keppnisárangri milli þessara ára, auk þess að skoða hvort áhrif eru af kynferði og aldri á keppnisárangur. Gögnum um keppnisárangur útfluttra keppnishesta í íþrótta- og gæðingakeppni var safnað úr WorldFeng. Gögnin voru skráð í Excel og tölfræðiforritið MiniTab var notað við úrvinnslu gagna. Kí-kvaðrat próf var notað til að bera saman hlutföll (hestar með/án keppnisreynslu og kynjahlutfall keppnishesta). Fervikagreining með línulegu módeli (Proc GLM og Tukey method) var notuð til að skoða mun á hæstu einkunn útfluttra hesta í hverri keppnisgrein milli útflutningsára með kynferði, ár og aldur sem fasta þætti. Einþátta fervikagreining var notuð við greiningu á keppnisreynslu og fjölhæfni. Flestir kepppnishestar voru fluttir út árið 2015 (P<0,001) og voru þeir einnig með mestu keppnisreynsluna (P=0,003). Fjölhæfustu hestarnir voru fluttir út árið 2010 og 2015 (P<0,006). Stóðhestar voru með marktækt hærri einkunnir heldur en hryssur í flestum keppnisgreinum og eldri hestar höfðu marktækt hærri einkunn heldur en yngri hestar í töltgreinum, fjórgangsgreinum og gæðingaskeiði. Meðalaldur útfluttra keppnishesta hefur aukist milli ára (9,0 vs. 9,6 og 10,9; P<0,001) og má því draga þá ályktun að hestakaupendur séu tilbúnir að kaupa eldri hesta og sjá mögulega samhengi milli eldri hests og líklegri árangurs í keppni. Sú ályktun er dregin að stóðhestar og eldri hestar eru líklegri til að ná betri árangri í keppni heldur en hryssur og yngri hestar. Aukning á útflutningi hrossa mætti skýra með vaxandi eftirspurn almennra reiðhesta þar sem vöxtur útflutnings virðist ekki liggja í sölu á keppnishestum. Export of Icelandic horses from Iceland has increased the last 10 years. The goal of this study is to compare competition scores of ...
|