Samanburður á keppnisárangri í fullorðnisflokkum sem náðist á Íslandi hjá hestum sem fluttir voru út árin 2010, 2015 og 2020

Útflutningur hesta frá Íslandi hefur aukist þegar litið er til seinustu tíu ára og áhugavert er að skoða hvort aukning sé á útflutningi á keppnishestum. Markmið þessarar rannsóknar er að bera saman hæstu einkunnir keppnishestanna sem fluttir voru út árin 2010, 2015 og 2020 og meta þróun á keppnisára...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Fanney Osterhammer Gunnarsdóttir 1999-
Other Authors: Háskólinn á Hólum
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2022
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/42720
Description
Summary:Útflutningur hesta frá Íslandi hefur aukist þegar litið er til seinustu tíu ára og áhugavert er að skoða hvort aukning sé á útflutningi á keppnishestum. Markmið þessarar rannsóknar er að bera saman hæstu einkunnir keppnishestanna sem fluttir voru út árin 2010, 2015 og 2020 og meta þróun á keppnisárangri milli þessara ára, auk þess að skoða hvort áhrif eru af kynferði og aldri á keppnisárangur. Gögnum um keppnisárangur útfluttra keppnishesta í íþrótta- og gæðingakeppni var safnað úr WorldFeng. Gögnin voru skráð í Excel og tölfræðiforritið MiniTab var notað við úrvinnslu gagna. Kí-kvaðrat próf var notað til að bera saman hlutföll (hestar með/án keppnisreynslu og kynjahlutfall keppnishesta). Fervikagreining með línulegu módeli (Proc GLM og Tukey method) var notuð til að skoða mun á hæstu einkunn útfluttra hesta í hverri keppnisgrein milli útflutningsára með kynferði, ár og aldur sem fasta þætti. Einþátta fervikagreining var notuð við greiningu á keppnisreynslu og fjölhæfni. Flestir kepppnishestar voru fluttir út árið 2015 (P<0,001) og voru þeir einnig með mestu keppnisreynsluna (P=0,003). Fjölhæfustu hestarnir voru fluttir út árið 2010 og 2015 (P<0,006). Stóðhestar voru með marktækt hærri einkunnir heldur en hryssur í flestum keppnisgreinum og eldri hestar höfðu marktækt hærri einkunn heldur en yngri hestar í töltgreinum, fjórgangsgreinum og gæðingaskeiði. Meðalaldur útfluttra keppnishesta hefur aukist milli ára (9,0 vs. 9,6 og 10,9; P<0,001) og má því draga þá ályktun að hestakaupendur séu tilbúnir að kaupa eldri hesta og sjá mögulega samhengi milli eldri hests og líklegri árangurs í keppni. Sú ályktun er dregin að stóðhestar og eldri hestar eru líklegri til að ná betri árangri í keppni heldur en hryssur og yngri hestar. Aukning á útflutningi hrossa mætti skýra með vaxandi eftirspurn almennra reiðhesta þar sem vöxtur útflutnings virðist ekki liggja í sölu á keppnishestum. Export of Icelandic horses from Iceland has increased the last 10 years. The goal of this study is to compare competition scores of ...