Bætt aðgengi fyrir hreyfihamlaða einstaklinga á Íslandi

Markmiðið með þessu verkefni er að vekja athygli á hindrunum sem fatlaðir einstaklingar þurfa að glíma við á hverjum einasta degi þegar á við um aðgengi að byggingum og leitað verður svara við rannsóknarspurningunni: Hvaða þættir hafa áhrif á slæmt aðgengi á Íslandi og hvað getum við gert til þess a...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Róbert Steinar Hjálmarsson 1992-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2022
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/42684
Description
Summary:Markmiðið með þessu verkefni er að vekja athygli á hindrunum sem fatlaðir einstaklingar þurfa að glíma við á hverjum einasta degi þegar á við um aðgengi að byggingum og leitað verður svara við rannsóknarspurningunni: Hvaða þættir hafa áhrif á slæmt aðgengi á Íslandi og hvað getum við gert til þess að breyta þeim? Í verkefninu verður farið yfir samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og skoðuð birtingamynd aðgengis fyrir fatlaða einstaklinga í honum. Einnig verður fjallað um algilda hönnun. Að auki var tekið viðtal til að fá upplýsingar um sjónarhorn einstaklings sem stendur fyrir verkefninu Römpum upp Reykjavík. Markmiðið með viðtalinu er að kafa dýpra í þeirra mikilvæga verkefni, lærdóminn af því frábæra verkefni og ástæðurnar á bakvið það. Áhersla verður lögð á hvernig viðhorf einstaklinga í okkar samfélagi hefur áhrif á aðgengi fyrir fatlaða einstaklinga. Með verkefninu Römpum upp Reykjavík hefur verið tekið stórt skref í aðgengismálum fyrir fatlaða einstaklinga hér á landi. Með þessu lokaverkefni er ætlunin að skoða hvaða þættir hafa áhrif á slæmt aðgengi þannig að hægt sé að bregðast við með markvissari hætti. Þegar litið er á niðurstöðurnar er ljóst að kostnaður, hugsunarleysi og viðhorf einstaklinga spila stórt hlutverk þegar aðgengismál eru annars vegar.