Hvernig er þróun sjálfvirknivæðingar í smásöluverslun á Íslandi

Í þessari rannsókn er skoðað hvernig sjálfvirknivæðing lítur út í íslenskum smásöluverslunum. Skoðað er hvaða tól og aðferðir eru notaðar innanlands og utan, í fræðilegu yfirliti og þeim gerð skil auk þess að farið er yfir hvernig þau geta unnið saman. Markmið rannsóknarinnar var að sjá hvernig sjál...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ástþór Sindri Eiríksson 1999-
Other Authors: Háskólinn á Bifröst
Format: Bachelor Thesis
Language:Icelandic
Published: 2022
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/42545
Description
Summary:Í þessari rannsókn er skoðað hvernig sjálfvirknivæðing lítur út í íslenskum smásöluverslunum. Skoðað er hvaða tól og aðferðir eru notaðar innanlands og utan, í fræðilegu yfirliti og þeim gerð skil auk þess að farið er yfir hvernig þau geta unnið saman. Markmið rannsóknarinnar var að sjá hvernig sjálfvirknivæðing lítur út í smásöluverslunum á Íslandi, ekki var tekið tillit til skoðana viðskiptavina á henni eða hvað þeim finnst um nýjungar í smásöluverslunum. Því voru framkvæmd eigindleg viðtöl við stjórnendur helstu smásöluverslana og þjónustufyrirtækja tengd þeim, stuðst var við aðleiðslu í hálfopnum viðtölum til þess að viðmælendur gæfu einlæg svör. Rannsóknarspurningin sem var lögð fyrir og höfð að leiðarljósi í gegnum þetta verkefni er: Hvernig er þróun sjálfvirknivæðingar í smásöluverslunum á Íslandi? Farið er yfir sögulega þróun smásöluverslana, fyrri rannsóknir á þessu sviði, fjárhagslega greiningu helstu smásala Íslands, hvaða áfangar hafa náðst hér á landi í sjálfvirknivæðingu auk fyrirmynda á þeirri vegferð og loks er farið í þemagreiningu á helstu niðurstöðum úr þeim viðtölum sem voru tekin. Niðurstöður þessarar rannsóknar gefa til kynna hvernig sjálfvirknivæðing smásöluverslana lítur út á Íslandi og hvaða tól og vélbúnaður er mest notaður á þeirri vegferð. Í niðurstöðum rannsóknarinnar kemur einnig fram hvernig samlegðaráhrif stafrænnar þróunar og sjálfvirknivæðingar spila saman. Þau tól og sú gervigreind sem er notuð við að reyna hámarka nýtingu á hvern fermeter vegna minnkunar á verslunum skv. aðalskipulagi Reykjavíkurborgar. Niðurstöður þessarar rannsóknar gefa til kynna hvernig sjálfvirknivæðing smásöluverslana lítur út á Íslandi, hvaða tól er einna helst stuðst við á þeirri vegferð og hvað framtíðin ber í skauti sér. Loks hvernig breytt neysluhegðun hefur áhrif á staðbundnar verslanir á Íslandi og kröfunar um heildrænni verslunar upplifun. In this study the automation of retail stores in Iceland is looked at through various angles. In the theoretical part it was reviewed what tools and hardware ...