Summary: | Rannsókn þessi er hluti stærra verkefnis sem snýr að þróunarstarfi í Fellaskóla í Reykjavík. Markmið rannsóknarinnar var að afla upplýsinga um hvernig fjöltyngdir nemendur í 6.–10. bekk nota íslensku í daglegu lífi í samskiptum við skólafélaga og í net- og heimalestri. Tilgangurinn er að afla upplýsinga svo skipuleggja megi markvissar þann stuðning sem þeim er veittur í skólanum og þannig efla mál og læsi þeirra nemenda sem eiga íslensku ekki að móðurmáli. Tekin voru einstaklingsviðtöl við 78 fjöltyngda nemendur í Fellaskóla á vormisseri 2022 en það eru 54% af fjöltyngdum nemendum í 6.–10. bekk skólans og um 43% af heildarfjölda nemenda þessara árganga. Meginniðurstöður eru að heimalestur nemenda minnkar með hækkandi aldri og lestur á íslensku einnig. Þá er enska ríkjandi tungumál við upplýsingaleit á neti og í samskiptum í frímínútum. Flestir þátttakanda telja sig skilja móðurmálið og ensku betur en íslensku og flestir sögðust tala íslensku vel eða sæmilega, ensku vel, en niðurstöður fyrir móðurmálið dreifðust meira. Þá telja flestir þátttakenda sig lesa íslensku og ensku vel, og flestir telja sig skrifa íslensku og ensku vel eða sæmilega, en síður geta skrifað móðurmálið. Þá þótti langflestum mikilvægt eða mjög mikilvægt að læra íslensku og ensku, en síður mikilvægt að læra móðurmálið. Þessar niðurstöður eru um margt áhyggjuefni, en í góðu samræmi við rannsóknir hérlendis. Þótt tekist hafi að skapa öruggt umhverfi innan kennslustofunnar þar sem langflestir nemendur nota íslensku þá er mikilvægt að skoða þátttöku nemendanna í skólastarfinu, hvort þeir skilja umfjöllun um viðfangsefni námsins, hvort þeir ráða við lesefnið og ekki síður hvort þeir geta rætt um viðfangsefnin á innihaldsríkan hátt og komið þekkingu sinni og skilningi til skila í rituðu máli.
|