Endurgjöf í grunnskóla : leiðir og ávinningur

Ritgerð þessi fjallar um skoðanir og viðhorf grunnskólakennara til endurgjafar út frá hugmyndum tengdum leiðsagnarnámi og námsmati. Endurgjöf hefur verið mikið rannsökuð erlendis og hafa niðurstöður rannsókna sýnt að markviss endurgjöf hjálpar nemendum að bæta sig og setja sér markmið í námi, en end...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Brynhildur Hrund Jónsdóttir 1975-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2022
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/42462
Description
Summary:Ritgerð þessi fjallar um skoðanir og viðhorf grunnskólakennara til endurgjafar út frá hugmyndum tengdum leiðsagnarnámi og námsmati. Endurgjöf hefur verið mikið rannsökuð erlendis og hafa niðurstöður rannsókna sýnt að markviss endurgjöf hjálpar nemendum að bæta sig og setja sér markmið í námi, en endurgjöf sem er gefin seint og er ekki vönduð gagnast þeim lítið. Í rannsókninni var spurt um hvernig grunnskólakennarar haga endurgjöf til nemenda í námi, hversu markvissa þeir telja hana vera og að lokum hvort grunnskólakennarar sækist eftir endurgjöf frá nemendum og þá með hvað hætti. Um eigindlega rannsókn er að ræða og var gögnum safnað með viðtölum við sex grunnskólakennara sem allir starfa í grunnskólum í Reykjavík sem hafa yfirlýsta stefnu um að kenna samkvæmt leiðsagnarnámi. Helstu niðurstöður bentu til að kennarar greindu mun á viðhorfum nemenda eftir að þeir fóru að kenna eftir hugmyndum um leiðsagnarnám og að nemendur kölluðu eftir meiri endurgjöf og matlistum til að fara eftir þegar þeir voru að vinna í verkefnum. Þeir viðmælendur sem sóttust eftir endurgjöf frá nemendum fannst hún hjálpa sér mikið við að skipuleggja kennslu sína en allir viðmælendur voru á einu máli um að endurgjöf frá nemendum væri eitthvað sem þeir ættu að kalla eftir. Þessi rannsókn getur verið gagnleg fyrir kennara sem vilja skoða leiðsagnarnám og endurgjöf betur vegna þess að hún sýnir vel að hægt er að fara margar mismunandi leiðir þegar kennarar ákveða að innleiða leiðsagnarnám. Jafnframt sýndi hún að kennarar voru ánægðir að hafa innleitt leiðsagnarnám inn í sína kennslu og þeirra upplifun var að nemendur væru það líka. Einnig komu ýmsar áhugaverðar niðurstöður í ljós við úrvinnslu gagna sem vert er að skoða nánar. This dissertation deals with the views and attitudes of primary school teachers for feedback based on ideas related to guidance learning and assessment. Feedback has been extensively researched internationally and the results have indicated that purposeful feedback helps students to develope and set goals in their ...