Lokaverkefni leikara 2022

Listaháskóli Íslands Iceland University of the Arts HAMLET e. William Shakespeare. Í samstarfi við Þjóðleikhúsið og LA. Sýnt í Samkomuhúsinu 19.-21. maí og í Kassanum, Þjóðleikhúsinu, 25. maí - 2. júní. Ávarp fagstjóra Útskriftarárgangur leikarabrautar við LHÍ árið 2022 hefur gengið í gegnum ýmisleg...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sigurður Ingvarsson 1998-
Other Authors: Listaháskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2022
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/42370
Description
Summary:Listaháskóli Íslands Iceland University of the Arts HAMLET e. William Shakespeare. Í samstarfi við Þjóðleikhúsið og LA. Sýnt í Samkomuhúsinu 19.-21. maí og í Kassanum, Þjóðleikhúsinu, 25. maí - 2. júní. Ávarp fagstjóra Útskriftarárgangur leikarabrautar við LHÍ árið 2022 hefur gengið í gegnum ýmislegt á sinni skólagöngu. Á miðri vorönn 2020, á fyrsta ári þeirra, var öllu skellt í lás og allir sendir heim til að stunda sitt nám fyrir framan tölvuskjái. Þó það tímabil hafi nú ekki staðið lengi, hefur nám þeirra einkennst af nálægðarmörkum, grímuskyldu og fjöldatakmörkunum. Kannski ekki kjöraðstæður fyrir nám sem leggur ríka áherslu á nánd, hlustun og stefnumót við áhorfendur. Og auðvitað var það erfitt. En þessi árgangur hefur aldeilis ekki látið það stoppa sig. Með þrautseigju, útsjónarsemi, og með sprúðlandi sköpunarkraft að leiðarljósi hafa þessir nemendur lagt elju og metnað í öll verkefni sem þau hafa tekið þátt í og sú vinna er nú aldeilis að skila sér. Þau hafa sýnt mér undanfarin ár að þau eru hæfileikabúnt og framúrskarandi listamenn,bæði hvert fyrir sig og saman sem hópur. Ég verð að segja að ég er gríðarlega stoltur að kynna ykkur fyrir þessu unga listafólki með þessari glæsilegu sýningu á Hamlet. Framtíðin er þeirra! Hannes Óli Ágústsson Leikarar: Guðrún Kara Ingudóttir: Hamlet, flauta & bakraddir Starkaður Pétursson: Kládíus, hljómborð & bakr. Unnur Birna J. Backman: Gertrúd, söngur, slagverk & selló Sigurður Ingvarsson: Pólóníus, slagverk & bakr. Jökull Smári Jakobsson: Laertes, slagverk, bassi, trompet & bakr. Elín Sif Halldórsdóttir: Ófelía, söngur, kassagítar & rafmagnsgítar Arnar Hauksson: Hóras, slagverk & bakr. Arnór Björnsson: Rósinkrans, söngur, slagverk, ukulele Vigdís Halla Birgisdóttir: Gullinstjarna, söngur, slagverk, aperol glas Jón Sigurður Gunnarsson: Ósrik, hljómborð, slagverk, bassi, kassagítar, rafmagnsgítar, munnharpa, bakr. Ávarp leikstjóra Sagan af Hamlet hefur fylgt mannkyninu í árþúsund og hefur verið sögð á ólíkum tungumálum, í ótal myndum og mörgum ...