Summary: | Stórir jarðskjálftar geta vakið mikla hræðslutilfinningu hjá fólki og jafnvel ógnað lífi þess. Það fer meðal annars eftir stærð skjálftans og eyðileggingarmætti hans hversu mikil áhrif hann hefur til langs tíma á geðheilsu fólks. Áfallastreituröskun, þunglyndi, svefntruflanir og aðrir sálrænir kvillar geta komið fram í kjölfar hörmunga eða annarra áfalla. Stór jarðskjálfti varð á Suðurlandi þann 29. maí árið 2008 sem ógnaði lífi fólks og olli töluverðum skemmdum. Til allrar hamingju lést enginn í skjálftanum né slasaðist alvarlega. Stór jarðskjálfti sem þessi, auk hættu á eftirskjálftum, olli nokkurri hræðslu og því mátti búast við töluverðum áhrifum á geðheilsu fólks eftir atburðinn. Í þessari rannsókn er ætlunin að kanna hvort notkun geðlyfja hafi aukist hjá 0-69 ára íbúum jarðskjálftasvæðis í kjölfar skjálftans. Íhlutunartímaraðagreining var gerð með fjölbreytu aðhvarfsgreiningu á gögnum úr lyfjagagnagrunni landlæknis á mánaðarfresti. Algengi og nýgengi róandi og kvíðastillandi lyfja (N05B (ásamt N03AE)), svefn og róandi lyfja (N05C) og þunglyndislyfja (N06A) var mælt. Tvö viðmið eru notuð í rannsókninni, annars vegar lyfjanotkun íbúa alls landsins nema þeirra sem bjuggu á jarðskjálftasvæði og hins vegar notkun HMG CoA redúktasa hemla, en notkun þeirra ætti ekki að breytast við íhlutun eins og jarðskjálfta. Lyfjanotkun fyrir og eftir skjálftann var einnig rannsökuð eftir kyni og aldri. Geðlyfjanotkun reyndist ekki hafa aukist hjá íbúum jarðskjálftasvæðis eftir jarðskjálftann miðað við viðmiðunarhóp. Enginn munur sást milli kynja og lítill munur eftir aldri. Þrátt fyrir smávægilega skráningargalla reyndist lyfjagagnagrunnur landlæknis vera gott tól til rannsóknar af þessu tagi. Athyglisvert var að sjá aukningu í notkun lyfja í ATC flokkum N05B (ásamt N03AE), N05C og að hluta til N06A fyrir viðmiðunarhóp (allt landið) eftir jarðskjálftann en þess ber að geta að í október 2008 skall á fjármálakreppa hérlendis og gætu áhrif hennar því verið að koma fram. Þessi áhrif þarf að rannsaka betur. Big earthquakes can be ...
|