Ratað um listina : listmiðað umhverfisnám og samþætting

Námskeiðið Ratað um listina snýst um samþættingu, umhverfismennt og gildi þess að nota kennslufræðilega leiki. Í námskeiðinu notast ég við ratleik sem ég bjó til fyrir snjallsíma þar sem markmiðið er að finna öll listaverkin í alþjóðlega höggmyndagarðinn á Víðistaðatúni og leysa þrautir. Ratleikurin...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Símon Örn Birgisson 1984-
Other Authors: Listaháskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2022
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/42299
Description
Summary:Námskeiðið Ratað um listina snýst um samþættingu, umhverfismennt og gildi þess að nota kennslufræðilega leiki. Í námskeiðinu notast ég við ratleik sem ég bjó til fyrir snjallsíma þar sem markmiðið er að finna öll listaverkin í alþjóðlega höggmyndagarðinn á Víðistaðatúni og leysa þrautir. Ratleikurinn er opinn öllum í forritinu Turf hunt og því ætti námskeiðið og ratleikurinn að geta nýst skólum í Hafnarfirði í framtíðinni. Ritgerðin skiptist í tvo hluta, í þeim fyrri fjalla ég um þau fræði sem liggja til grundvallar námskeiðinu og ratleiknum. Í seinni hluta ritgerðarinnar fjalla ég um heimsókn mína í Engidalsskóla en þar fékk ég að prófa námskeiðið og ratleikinn með nemendum í 7. bekk. Markmið mitt með ratleiknum og námskeiðinu er að búa til samþættingarverkefni sem sameinar áhugamál mín og ástríðu í kennslu sem er útinám, hópavinna og sköpun. Mig langar einnig til að verkefnið mitt geti orðið kennurum í mismunandi fögum innblástur og jafnvel upphafspunktur í skapandi eða listrænu ferli. Tilraunir mínar með ratleikinn og kennsluna hafa sannfært mig um gildi þess að leika sér og vera úti. Þrátt fyrir að Víðistaðatúnið í Hafnarfirði sé vinsæll áfangastaður bæði leik- og grunnskóla í bænum er ekkert kennsluefni garðinum sérstaklega. Ratað um listina er tilraun til að bæta úr því. My final project Finding your way through art is about educational games, enviromental studies and intergration of multiple studies. I created a „Treasure hunt“ game for smartphones where the aim is to find all the sculptures on Víðistaðatún and solve puzzles. My hope is for this game to be part of the curriculum in the schools in Hafnarfjörður in the future. This essay is divided into two parts. In the first part I write about the theoritical backround of the seminar Fidning your way through art and the treasure hunt game. In the second part I describe my visit to Engidalsskóli where I got an oppurtunity to teach the seminars with children in 7. bekkur. The aim of Finding your way through art is to create a project that shows how ...