Framleiðslulíkan fyrir fiskeldi og bestun á kerauppsetningu fyrir nýja landeldisstöð Samherja fiskeldis

Íbúum jarðar heldur áfram að fjölga, sem leiðir til aukinnar eftirspurnar eftir matvælum og þar með talið sjávarfangi. Fiskeldi hefur farið ört vaxandi síðustu áratugi og mikilvægi fiskeldis til matvælaframleiðslu er gríðar mikið þar sem villtir fiskistofnar heimsins anna ekki eftirspurn. Þessi mikl...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sigríður Júlía Heimisdóttir 1997-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2022
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/42097
Description
Summary:Íbúum jarðar heldur áfram að fjölga, sem leiðir til aukinnar eftirspurnar eftir matvælum og þar með talið sjávarfangi. Fiskeldi hefur farið ört vaxandi síðustu áratugi og mikilvægi fiskeldis til matvælaframleiðslu er gríðar mikið þar sem villtir fiskistofnar heimsins anna ekki eftirspurn. Þessi mikla þróun í vexti greinarinnar er að eiga sér stað hér á landi líkt og úti í heimi og hefur uppgangurinn aldrei verið hraðari. Það er því ljóst að íslenskir ræktendur á fiski munu leggja sín lóð á vogarskálina til þess að koma til móts við aukna eftirspurn. Þetta verkefni er unnið í samstarfi við Samherja fiskeldi. Samherji fiskeldi er leiðandi fyrirtæki innan fiskeldisiðnaðarins bæði hér á landi sem og úti í heimi. Fyrirtækið hefur mikla trú á framþróun í fiskeldi á Íslandi og hefur áformað byggingu á 40 þúsund tonna landeldi á laxi í Auðlindagarðinum á Reykjanesi. Þessari stóru framkvæmd fylgja margar áskoranir sem snúa meðal annars að hönnun og byggingu landeldisstöðvarinnar. Í þessu verkefni er útbúið framleiðslulíkan sem byggir á vaxtarferli eldisfisks og það notað til þess að spá fyrir um framleiðslu fiskeldisstöðvarinnar. Auk þess eru niðurstöður úr líkaninu notaðar til að meta og ákvarða hver sé hentug uppsetning á fiskikerum fyrir nýju landeldisstöð Samherja með notkun næmnigreiningar. Niðurstöður næmnigreiningar leiddu í ljós að miðað við gefnar forsendur er hentugasta uppsetning kera út frá nýtni sú að fjöldi þeirra er sex á öllum þremur stigum matfiskeldisins, þ.e. í áframeldi 1, áframeldi 2 og áframeldi 3, og stærð þeirra 1.050m3, 2.900m3 og 5.050m3, í áðurnefndri röð. The global population keeps growing, leading to increased demand for food, including fish products. Fish farming has been growing rapidly in recent decades, and the importance of fish farming for food production is enormous, as the world‘s wild fish stocks do not meet demand. This great development in the growth of the industry is taking place in Iceland as in the rest of the world, and the upswing has never been faster. It is clear that ...