Risaverkefni á Íslandi : gagnagrunnur stórverkefna á Íslandi og fjárhagslegt umfang þeirra í næstu framtíð

Risaverkefnum er yfirleitt ætlað að koma á markverðum breytingum í samfélögum víða um heim og eiga oft þátt í að nútímavæða og fleyta samfélaginu hraðar inn í framtíðina en ella. Á Íslandi eru fjölmörg stórverkefni í gangi eða í bígerð. Þó er ekki til heildstæð samantekt yfir þessi stórverkefni svo...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Brynja Dagmar Jakobsdóttir 1995-, Hrund Ottósdóttir 1978-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2022
Subjects:
MPM
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/42049
Description
Summary:Risaverkefnum er yfirleitt ætlað að koma á markverðum breytingum í samfélögum víða um heim og eiga oft þátt í að nútímavæða og fleyta samfélaginu hraðar inn í framtíðina en ella. Á Íslandi eru fjölmörg stórverkefni í gangi eða í bígerð. Þó er ekki til heildstæð samantekt yfir þessi stórverkefni svo hægt sé að leggja betur mat á fjárhagslegt umfang og helstu einkenni þeirra. Helstu niðurstöður þessarar rannsóknar eru þær að í fyrsta sinn er birt frumgerð af gagnagrunni um þá umtalsverðu fjármuni sem til stendur að ráðstafa í opinber stórverkefni á Íslandi á næstu árum. Stór hluti þess fjármagns verður nýttur til innviðauppbyggingar, s.s. vegagerðar og bygginga stórra mannvirkja. Gagnagrunnar af þessu tagi þekkjast víða erlendis, t.d. til að meta heilstætt fjárfestingarþörf atvinnuvega og verkefnagerða. Til lengri tíma geta slíkir grunnar einnig gagnast við að bæta forspár og verkefnastjórnsýslu. Niðurstöðurnar gefa til kynna að það sé veruleg fjárfestingaþörf á Íslandi en einnig að sú frumgerð sem hér er kynnt rúmi aðeins hluta þess sem koma skal. Það er von höfunda að gagnagrunnurinn sé aðeins upphafið af því að gefa betri yfirsýn yfir stórverkefni á Íslandi og að þessi grein muni stuðla að enn frekari rannsóknum á þessu sviði. Megaprojects are commonly used to bring about significant changes in societies around the world. They often play an important role in modernization and contribute to faster future solutions. In Iceland, there are many large-scale projects underway or under construction. Nevertheless, there exists no good overview of these projects to better assess their financial scope and their main characteristics. The main results of this study are that, for the first time, a prototype of a database is published on the significant funds that are planned to be allocated to public megaprojects in Iceland in the coming years. A large part of that capital is covered by infrastructure development, such as road construction and other man-made large structures. Databases of this kind are known from abroad, ...