Styður íslenskt lagaumhverfi við góða verkefnastjórnsýslu eins og hún er skilgreind og viðurkennd á alþjóðavettvangi?

Verkefnastjórnsýsla eru leikreglurnar utan um ákvarðanatöku og framkvæmd innan skipuheildar sem byggir á gegnsæi, ábyrgð og skýrum hlutverkum aðila. Stjórnsýsla afmarkar einnig hvert eignarhald verkefnis er og hver stýrir verkefninu. Stefna er mörkuð með lagasetningu eða ákvörðun stjórnvalda og það...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Erla Stefánsdóttir 1974-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2022
Subjects:
MPM
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/42043
Description
Summary:Verkefnastjórnsýsla eru leikreglurnar utan um ákvarðanatöku og framkvæmd innan skipuheildar sem byggir á gegnsæi, ábyrgð og skýrum hlutverkum aðila. Stjórnsýsla afmarkar einnig hvert eignarhald verkefnis er og hver stýrir verkefninu. Stefna er mörkuð með lagasetningu eða ákvörðun stjórnvalda og það er hlutverk fagfólks og stofnana að koma stefnunni í framkvæmd. Áður en ráðist er í lagasetningu er hægt að efla til samráðs við hagsmunaaðila og sérfræðinga. Með samráði er hægt að afla upplýsinga um mismunandi leiðir og afleiðingar þeirra. Steinunn Marta Gunnlaugsdóttir bar saman verkefnastjórnsýslu hins opinbera á Íslandi við verkefnastjórnsýslu í Noregi í meistararitgerð sinni við Háskólann í Reykjavík „Umgjörð verkefnastjórnsýslu í viðamiklum opinberum verkefnum á Íslandi og í Noregi: Skilningur og aðferðafræði“. Verkefni þetta styðst við rannsókn hennar og leitast við að svara því hvort að íslenskt lagaumhverfi styðji við góða verkefnastjórnsýslu eins og hún er skilgreind og viðurkennd. Niðurstaðan er sú að margt bendir til þess að þörf sé á að skerpa lagaumgjörð um opinberar framkvæmdir. Lagaumgjörðin við opinberar framkvæmdir er til staðar en sú umgjörð styður ekki nægilega vel við nútíma verkefnastjórnsýslu. Þá hefur verið bent á þörfina á því að skýra aðferðafræði og staðla verklag. Kallað hefur verið eftir samráðsvettvangi stjórnvalda, atvinnulífs og fræðasamfélags.