Val hagsmunaaðila og stýring samskipta hjá Reykjavíkurborg við byggingu skóla, menningar- og íþróttamiðstöðvar í Úlfarsárdal : Er Reykjavíkurborg þróaður verkkaupi þegar kemur að vali hagsmunaaðila og stýringu samskipta við þá?

Val og stjórnun á hagsmunaaðilum er í dag talið það verkfæri sem verkefnastjórar þurfa að leggja hvað mesta áherslu á. Til að tryggja árangur þeirra verka sem verkefnastjórar taka að sér er grunnvinna verkefnisins ávallt sú að greina og halda skrá um þá hagsmunaaðila sem geta haft bein og óbein áhri...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Guðmundur Pétur Haraldsson 1969-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2022
Subjects:
MPM
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/42029
Description
Summary:Val og stjórnun á hagsmunaaðilum er í dag talið það verkfæri sem verkefnastjórar þurfa að leggja hvað mesta áherslu á. Til að tryggja árangur þeirra verka sem verkefnastjórar taka að sér er grunnvinna verkefnisins ávallt sú að greina og halda skrá um þá hagsmunaaðila sem geta haft bein og óbein áhrif á árangur verkefnis. Til að kanna notkun Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkur á fræðunum sem fjalla um greiningu og stjórnun samskipta við hagsmunaaðila var bygging skóla-, íþrótta- og menningar-miðstöðvar í Úlfarsársdal skoðuð og kannað með hvaða hætti slíkt verkefni er skipulagt með tilliti til hagsmunaaðila. Niðurstaða rannsóknarinnar er að Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur noti sér að hluta til fræðin þegar kemur að innri hagsmunaaðilum, en það liggja tækifæri hjá þeim að formfesta betur greiningar og flokkun hagsmunaaðila ásamt áhættugreiningu og samskiptamáta á ytri hagsmunaaðilum. Stakeholder management is a knowledge area that has received increased attention among those who manage projects in recent years. The purpose of implementing the stakeholder’s theory is to increase the probability that the project will be successful because the project manager considers the requirements and the wishes of different stakeholders and searches for best possible outcome for all parties. The aim of the study was to examine and to review a project that Reykjavík city did and compare it to the stakeholder’s theory. The project is one of the largest projects that Reykjavík has conducted and took almost eight years to complete. The conclusion is that even though Reykjavik uses formal methods of keeping stakeholders either up to date or implement a group that involves the major stakeholders in the project within the city, it cannot be said that they are fully using the method as it is intended. The conclusion is that there are many opportunities for Reykjavík city to improve stakeholder management. Particularly by categorizing the stakeholder’s potential, making a good plan of threat and reply to possible negative ...