Geðheilbrigði ungmenna á aldrinum 18-25 ára sem sækja þjónustu í Bergið Headspace

Geðheilbrigði ungmenna hefur hrakað síðastliðin misseri, þar sem einkenni þunglyndis, kvíða og streitu hafa stigmagnast. Stöðugt er verið að kanna þá þætti sem hafa neikvæð áhrif á líðan ungmenna og sýna rannsóknir að eitt af hverjum fimm börnum á Íslandi hefur orðið fyrir líkamlegu og/eða kynferðis...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Kolbrún Tanja Eggertsdóttir 1992-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2022
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/41958
Description
Summary:Geðheilbrigði ungmenna hefur hrakað síðastliðin misseri, þar sem einkenni þunglyndis, kvíða og streitu hafa stigmagnast. Stöðugt er verið að kanna þá þætti sem hafa neikvæð áhrif á líðan ungmenna og sýna rannsóknir að eitt af hverjum fimm börnum á Íslandi hefur orðið fyrir líkamlegu og/eða kynferðislegu ofbeldi á lífsleið sinni. Í gegnum tíðina hafa fjölmargar rannsóknir sýnt fram á sterk tengsl ofbeldis og/eða vanrækslu í æsku og andlegra kvilla hjá ungmennum. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna hver andleg líðan ungmenna er við fyrstu komu í Bergið Headspace ásamt því að greina hvort að einstaklingar nái fram betri líðan milli endurkoma í Bergið. Bergið Headspace er lágþröskuldaúrræði sem býður upp á ráðgjöf og stuðning fyrir ungmenni að 25 ára aldri, á þeirra eigin forsendum. Í rannsókninni var notast við tilgangsúrtak sem samanstóð af 111 einstaklingum á aldrinum 18-25 ára sem leituðu í Bergið. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu fram á að ungmenni sem sóttu þjónustu í Bergið Headspace voru í flestum tilvikum með væg einkenni þunglyndis, kvíða og/eða streitu sem gefur til kynna að hægt sé að tryggja þeim snemmtæka íhlutun með slíku úrræði. Einnig var marktækur munur á líðan ungmenna milli fyrstu komu og endurkoma í Bergið Headspace þar sem aukin vellíðan og virkni var til staðar. Þessi rannsókn er sú fyrsta sem gerð hefur verið á Headspace hugmyndafræðinni í tengslum við einstaklingsbundinn árangur á geðheilbrigði, eftir því sem höfundur best veit. Áhugavert væri að endurtaka rannsóknina með niðurstöðum úr DASS, CORE og ACE listum til að öðlast frekari upplýsinga um áhrifaþætti geðheilbrigði ungmenna á Íslandi ásamt áfallasögu þeirra. Lykilorð: Geðheilbrigði ungmenna, Headspace, áföll, DASS, CORE The mental health of young people has been deteriorating over the past years, and symptoms of depression, anxiety have steadily increased. The factors that negatively influence the mental health of young people are constantly being researched, and studies show that one in every five children in Iceland has ...