Skipulögð brotastarfsemi á Íslandi : þróun löggjafar er varðar skipulagða brotastarfsemi

Ágrip Efni þessarar ritgerðar snýr að skipulagðri brotastarfsemi á Íslandi og þeirri löggjöf er hana varðar. Markmið hennar er að komast að því hvernig skipulögð brotastarfsemi á Íslandi hefur þróast undanfarin ár, hvernig löggjöfin stendur og hvort hún hafi haldið í við þær breytingar sem orðið haf...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hulda Dröfn Sveinbjörnsdóttir 1998-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2022
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/41942
Description
Summary:Ágrip Efni þessarar ritgerðar snýr að skipulagðri brotastarfsemi á Íslandi og þeirri löggjöf er hana varðar. Markmið hennar er að komast að því hvernig skipulögð brotastarfsemi á Íslandi hefur þróast undanfarin ár, hvernig löggjöfin stendur og hvort hún hafi haldið í við þær breytingar sem orðið hafa á skipulagðri brotastarfsemi hér á landi. Ljóst er að skipulögð brotastarfsemi á sér stað á Íslandi og tengist hinum ýmsu brotaflokkum, svo sem fíkniefnabrotum, mansali og peningaþvætti svo eitthvað sé nefnt. Þá hefur starfræn þróun og önnur tækniþróun sett svip sinn á skipulagða brotastarfsemi og breytt því hvernig hægt er að takast á við hana. Staða íslenskrar löggjafar sem tengist skipulagðri brotastarfsemi er misjöfn eftir brotaflokkum. Nýlega er búið að endurskoða löggjöf varðandi mansal og peningaþvætti og því eru þau regluverk heildstæð og til þess fallin að vinna gegn afbrotum á þessum sviðum. Löggjöf á öðrum sviðum hefur fengið meiri gagnrýni og hefur lögregla bent á að hún hafi takmarkaðar heimildir til þess að takast á við skipulagða brotastarfsemi. Ákæruvaldinu hefur reynst erfitt að sanna brot gegn 175. gr. a. alm. hgl., sem gerir þátttöku í skipulagðri brotastarfsemi refsiverða, þrátt fyrir niðurstöðu greiningardeildar ríkislögreglustjóra um að skipulögð brotastarfsemi eigi sér svo sannarlega stað hér á landi. Tilraunir hafa verið gerðar til þess að gera lagabreytingar sem veita lögreglu rýmri heimildir til þess að koma í veg fyrir skipulagða brotastarfsemi en þær hafa ekki náð í gegn. Nýjasta tilraunin til breytinga er hins vegar enn í vinnslu og því verður áhugavert að fylgjast með þróun þessa máls. Abstract The main focus of this thesis is on organized crime in Iceland and the legislation that concerns it. Its aim is to find out how organized crime in Iceland has developed in recent years, how the legislation stands and whether it has kept pace with the changes that have taken place regarding organized crime in Iceland. Organized crime takes place in Iceland and is related to various categories of ...