Samvinna styrkir tungumálaflæði : námskeið fyrir kennara tví- og fjöltyngdra nemenda á efri stigum grunnskóla

Ritgerðin er lokuð til 01.05.2042 Innflytjendum til Íslands hefur fjölgað ört og er ekkert lát á þeirri þróun. Á Íslandi hafa rannsóknir sem tengjast menntun fjöltyngdra nemenda leitt í ljós þörf á starfsþróun fyrir starfandi kennara og virðist eftirspurn eftir námskeiðum vera ærin. Þetta verkefni e...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Eva Ösp Matthíasdóttir 1986-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2022
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/41922
Description
Summary:Ritgerðin er lokuð til 01.05.2042 Innflytjendum til Íslands hefur fjölgað ört og er ekkert lát á þeirri þróun. Á Íslandi hafa rannsóknir sem tengjast menntun fjöltyngdra nemenda leitt í ljós þörf á starfsþróun fyrir starfandi kennara og virðist eftirspurn eftir námskeiðum vera ærin. Þetta verkefni er kynning á sjö vikna hagnýtu námskeiði fyrir starfandi kennara, sem kenna fjöltyngdum nemendum á efri stigum grunnskóla, til að mæta þeirri eftirspurn. Námskeiðið ber nafnið Samvinna styrkir tungumálaflæði og er hugsað sem hluti af starfsþróun kennara. Þó að námskeiðið sé sniðið að kennurum á efri stigum grunnskóla geta kennarar á yngsta- og miðstigi hæglega tekið þátt í námskeiðinu og aðlagað efni námskeiðsins að sínum aldurshóp. Svo virðist sem íslenskukunnátta veiti innflytjendum hvað mestan aðgang að íslensku samfélagi og því þarf að vanda vel til verka við að kenna fjöltyngdum nemendum íslensku. Námskeiðið inniheldur eftirfarandi sex þemu sem eiga að mynda heildræna nálgun á viðfangsefnið. Hvert þema er tekið fyrir í einni kennslustund fyrir utan eitt þema sem tekur tvær kennslustundir. Fræðilegi hluti námskeiðsins byggir á rannsóknum sem tengjast fjöltyngdum nemendum en síðari hlutinn tekur til þeirra þátta sem snúa beint að kennslunni sjálfri. 3 kafli, fræðilegi hluti ritgerðarinnar er opinn öllum en annað er með lokaðan aðgang. The number of people immigrating to Iceland has increased rapidly. It's been an ongoing development. In Iceland, research concerning the education of multilingual students has revealed the need for courses for employed teachers, and the demand for such classes seems to be considerable. Therefore, the researcher decided to create a 7-week practical course for employed teachers who teach multilingual students at a top level of primary schooling to meet that demand. The course is called Collaboration strengthens language flow and is meant to be a part of teachers' professional development. Although the course is tailored to top-level teachers in primary school, teachers at the ...