Heimabyggðin, Eskifjörður, tímarnir tvennir : grenndarmiðað nám mið- og efsta stig í grunnskóla

Þetta er 12 eininga lokaverkefni til B.Ed.-gráðu á grunnskólakjörsviði við Háskólann á Akureyri vorið 2022. Verkefninu er skipt í þrjá hluta, það er, greinargerð með hliðsjón af verkefnasafni, verkefnasafnið sjálft, sögutextar tengdir verkefnasafni og amboð sem nýtast til úrslausnar verkefnanna. Rau...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Heiður Dögg Vilhjálmsdóttir 1991-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2022
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/41902
Description
Summary:Þetta er 12 eininga lokaverkefni til B.Ed.-gráðu á grunnskólakjörsviði við Háskólann á Akureyri vorið 2022. Verkefninu er skipt í þrjá hluta, það er, greinargerð með hliðsjón af verkefnasafni, verkefnasafnið sjálft, sögutextar tengdir verkefnasafni og amboð sem nýtast til úrslausnar verkefnanna. Rauði þráði ritgerðarinnar er heimabyggð höfundar, Eskifjörður. Skoðað er hvernig hægt er að kenna ýmis fög utan kennslustofunnar með áherslu á að auka þekkingu nemenda á því samfélagi sem þau búa í. Ýmsir fræðimenn hafa bent á að notkun skynfæra við úrvinnslu verkefna getur skilað betri árangri heldur en hefðbundinn bóklestur. Eskifjörður er lítið sjávarþorp austur á fjörðum en þar gefast mörg tækifæri á því að kynnast náttúrunni sem spilar stóran þátt í því hvernig við getum notað samfélagið í kennslu. Í greinargerðinni verður fjallað um grenndarkennslu, útikennslu, vettvangsnám og mikilvægi sjálfs- og samvitundar nemenda þegar kemur að nærsamfélaginu. Verkefnasafnið inniheldur sjö fjölbreytt verkefni sem snúa öll að Eskifirði sem heimabyggð og eru miðuð að mið- og efsta stigi í grunnskóla en auðveldlega mætti útfæra verkefnin fyrir hvaða aldurshóp sem væri. Að lokum verður farið lauslega yfir þau amboð sem nemendur geta notast við til þess að vinna úr tilgreindum verkefnum. This is a 12 credits thesis to obtain B. Ed. degree in Primary School Education at the University of Akureyri submitted in spring 2020. My thesis is divided into two parts and it consists of a collection of projects meant for teaching 5th - 10th grade students as well as an analysis of the projects. The main focus of the thesis is Eskifjörður, the hometown of the author. The thesis examines how it is possible to teach various subjects outside of the classroom with an emphasis on enhancing children's knowledge of the community in which they live. Numerous scholars have pointed out that the use of various senses when working on assignments can be more productive than traditional book reading. Eskifjörður is a small fishing village that offers a ...