Handbók um þolæfingar í knattspyrnu

Þessi ritgerð er til B.Sc.-prófs í íþróttafræðum við Íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík (HR). Efni þessarar ritgerðar er knattspyrna og þær kröfur sem íþróttafólk verður að uppfylla til að ná árangri í henni. Ritgerðin er hugsuð sem handbók og sýnir þær æfingar sem þjálfarar í knattspyrnu geta...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ísak Leó Guðmundsson 1998-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2022
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/41892
Description
Summary:Þessi ritgerð er til B.Sc.-prófs í íþróttafræðum við Íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík (HR). Efni þessarar ritgerðar er knattspyrna og þær kröfur sem íþróttafólk verður að uppfylla til að ná árangri í henni. Ritgerðin er hugsuð sem handbók og sýnir þær æfingar sem þjálfarar í knattspyrnu geta notað til að bæta þol sinna leikmanna, hvort þær virki eða hvort það eru til aðrar æfingar sem sýna betri árangur. Markmið höfundar með þessari handbók er að hafa á einum stað þær æfingar sem sýna fram á breytingar á þoli hjá knattspyrnufólki og eru upplýsingar um allar þær æfingar sem koma fram í handbókinni fundnar í öðrum fræðigreinum þar sem búið er að sýna fram á með rannsóknum hvort sem það eru bæting á þoli eða ekki eftir að æfing var notuð. Þær greinar sem notaðar eru í handbókinni skoða hvort að munur er á þoltölum knattspyrnumanna eftir íhlutun með hlaupaprógrammi í ákveðinn tíma. Þrátt fyrir að til sé mikill fjöldi æfinga sem ætlað er að bæta þol knattspyrnufólks hefur þessum æfingum ekki verið safnað saman á einn stað fyrir þjálfara til að þeir geti skoðað hvaða æfingar bæta raunverulega þol leikmanna og hverjar geri það ekki. Þessari handbók er ætlað að veita þjálfurum aðgang að þeim æfingum sem best er að nota og sýna upplýsingar um raunverulegan ábata æfinganna með vísunum í rannsóknir.