Kynfræðsla, hvað er nú það? : grunnur að góðu kynheilbrigði

Verkefni þetta er unnið til B.Ed.-prófs í kennarafræðum við Kennaradeild Háskólans á Akureyri. Viðfangsefni verkefnisins er námsgreinin kynfræðsla, þar sem sjónum er beint að námsgreininni á grunnskólastigi. Ákall um aukna og markvissari kynfræðslu í skólakerfinu á Íslandi varð kveikjan að vali þess...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Sunnefa Níelsdóttir 1993-, Arndís Ósk Arnarsdóttir 1993-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2022
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/41870
Description
Summary:Verkefni þetta er unnið til B.Ed.-prófs í kennarafræðum við Kennaradeild Háskólans á Akureyri. Viðfangsefni verkefnisins er námsgreinin kynfræðsla, þar sem sjónum er beint að námsgreininni á grunnskólastigi. Ákall um aukna og markvissari kynfræðslu í skólakerfinu á Íslandi varð kveikjan að vali þessa verkefnis. Hér verður fjallað um námsgreinina, markmið hennar, tilgang og mikilvægi. Í fyrra hluta verkefnisins er áhersla lögð á að fjalla almennt um kynfræðslu og þau viðfangsefni sem viðkoma námsgreininni eins og kynþroska, kynlíf, kynsjúkdóma, kynheilbrigði og fleira svo dæmi séu tekin. Seinni hluta verkefnisins skiptist í tvo hluta þar sem rýnt verður í Aðalnámskrá grunnskóla ásamt lögum og öðrum reglugerðum með það að markmiði að kanna hvernig kynfræðsla kemur þar fyrir. Að hve miklu leyti á grunnskólinn að sinna kynfræðslu? Hvar á sú kennsla að fara fram? Og hver ber ábyrgð á kynfræðslunni? Þá verður í síðari hluta greint frá útgefnu námsefni sem er hugsað til notkunar í kennslu í kynfræðslu. Er til mikið og fjölbreytt útgefið efni fyrir kynfræðslu í grunnskólum? Er efnið uppfært reglulega og stenst það hraðar samfélagsbreytingar og tímans tönn? This project is a final assignment for a B.Ed.-degree within the Faculty of Education at the University of Akureyri. The subject of this assignment is sex education, where the focus is on the subject at the primary school level. The request for increased and more targeted sex education in the school system in Iceland became the trigger for the choice of this assignment. Here we will discuss the subject, its aims, purpose and importance. In the first part of the assignment, great emphasis is placed on discussing sex education in general and the topics related to sex education, such as sexual maturity, sex, sexually transmitted diseases and more. The second part of the assignment is divided into two parts, where the National Curriculum Guide for Compulsory Schools is first reviewed, along with laws and other regulations, with the aim of examining how sex education ...