"Upplifunin er að þau séu óvelkomin, að þau séu byrgði og veruleiki þeirra dreginn í efa" : flóttafólk og hælisleitendur á Íslandi

Fjölgun flóttafólks og hælisleitenda sem leita til Íslands og Evrópu hefur aukist verulega á undanförnum árum. Frá árinu 2015 hefur stefna stjórnmála einblínt á að hefta aðgengi fólks að Evrópu með hertri landamæralöggjöf og brottvísunaraðgerðum. Í kjölfar þessa viðmóts hafa móttökur á landamærum ve...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Stefanía Berg Steinarsdóttir 1997-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2022
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/41834
Description
Summary:Fjölgun flóttafólks og hælisleitenda sem leita til Íslands og Evrópu hefur aukist verulega á undanförnum árum. Frá árinu 2015 hefur stefna stjórnmála einblínt á að hefta aðgengi fólks að Evrópu með hertri landamæralöggjöf og brottvísunaraðgerðum. Í kjölfar þessa viðmóts hafa móttökur á landamærum verið afar slæmar og svo virðist sem mannúðarsjónarmið séu af skornum skammti. Viðhorf Evrópubúa til fólks af annarri menningu hafa einnig versnað og alið af sér ótta við aukið fjölmenningarsamfélag og fjölbreytni innan evrópskra samfélaga. Skiptar skoðanir eru á málefnum flóttafólks og hælisleitenda meðal Íslendinga og undanfarin ár hafa aðgerðir íslenskra stjórnvalda í þessum málaflokki verið harðlega gagnrýnd af baráttufólki og samtökum sem berjast fyrir auknum réttindum flóttafólks og hælisleitenda. Í rannsókninni verður þróun þessa málaflokks reifuð, viðmót Evrópulanda, Norðurlanda og svo að lokum Íslands við auknum flóttamannastraumi og fjölmenningu. Skoðað verður flóttamannakerfi Íslands frá sjónarhorni baráttufólks og hjálparsamtaka sem vinna náið með flóttafólki og hælisleitendum á Íslandi. Reynt verður að meta ástand kerfisins og viðhorfa íslensks samfélags til aukinnar fjölmenningar og leitað mögulegra úrbóta. Niðurstöður rannsóknarinnar eru í takt við fyrri rannsóknir, bæði innlendar og erlendar. Viðmælendur voru einróma um að bæta þurfi íslenska kerfið með tilliti til betri móttöku og úrræða ásamt aukinnar fræðslu. Breytingar á íslenska kerfinu eru þó háðar stærra samhengi eins og breytingum á Dyflinnarreglugerðinni sem er á vegum Evrópusambandsins. Lykilhugtök: Flóttamenn, hælisleitendur, viðhorf, fordómar, samþætting, réttarheimildir The encreasing number of refugees and asylum seekers seeking refuge in Iceland and Europe has increased significantly in recent years. Since 2015, political policies have focused on decreasing access to Europe through increased border legislation and stricter deportation measures. Following these interventions, border reception has been poor and humanitarian visions appear ...