Afríski draumurinn : um knattspyrnumenningu Afríkulanda og draum ungra knattspyrnumanna um að "meika það" í Evrópu

Þessi ritgerð er til BA-prófs í félagsvísindum við hug- og félagsvísindasvið Háskólans á Akureyri. Umfjöllunarefni ritgerðarinnar er knattspyrnumenning Afríkulanda, þar sem lögð verður áhersla á að skoða knattspyrnu drengja út frá félagsvísindalegu sjónarhorni. Farið verður yfir uppruna íþróttarinna...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Matthildur Edda Pétursdóttir 1997-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2022
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/41831
Description
Summary:Þessi ritgerð er til BA-prófs í félagsvísindum við hug- og félagsvísindasvið Háskólans á Akureyri. Umfjöllunarefni ritgerðarinnar er knattspyrnumenning Afríkulanda, þar sem lögð verður áhersla á að skoða knattspyrnu drengja út frá félagsvísindalegu sjónarhorni. Farið verður yfir uppruna íþróttarinnar í sögulegum skilningi sem og hvernig hún barst til álfunnar, auk þess sem greint verður frá hinum ýmsu knattspyrnusamböndum og mótum. Þá verður fjallað um staðbundna knattspyrnu í Afríku, flutninga afrískra leikmanna til Evrópu og spillingu innan knattspyrnuheimsins. Loks verður fjallað um mikilvægi knattspyrnu fyrir afrískar þjóðir, þar sem horft verður til félagslegra, efnahagslegra og fjölskyldutengdra þátta. Markmiðið með ritgerðinni er að varpa ljósi á félagslega hlið afrískrar knattspyrnu og hvaða þýðingu hún hefur fyrir afríska alþýðu, þar sem ljóst er að knattspyrna hefur t.d. mun víðtækari þýðingu fyrir Afríkubúa heldur en Evrópubúa almennt. Sýnt hefur verið fram á að ferill í knattspyrnu geti hreinlega lyft leikmönnum og fjölskyldum þeirra upp úr fátækt og bætt lífsmöguleika þeirra til muna. Knattspyrnumenn eru stjörnurnar í Afríku, íþróttin er spiluð alls staðar og það er mikill uppgangur í henni. Fyrir flesta afríska leikmenn er leiðin að atvinnumennsku í knattspyrnu þó ekki hindrunarlaus og þurfa þeir oft að takast á við erfiðar áskoranir eins og svindl og svik, sem ásamt fleiru verður stiklað á í þessari ritgerð. This paper is submitted as a part of the Baccalaureus Atrium – degree in Social Sciences at the University of Akureyri. The subject of the paper is the African soccer culture, where emphasis will be placed on looking at boys’ soccer from a social science perspective. The origins of the sport in the historical sense and its origins in the continent will be covered, as well as various soccer associations and tournaments. The local soccer in Africa and the migration of African players to Europe will be discussed, besides corruption within the world of soccer. Finally, the importance of soccer ...