Staða drengja í skólakerfinu á Íslandi : upplifun grunnskólakennara á stöðu drengja í kennslustofunni

Staða drengja í skólakerfinu hefur verið mikið í umræðunni í samfélaginu. Háværar raddir hafa verið um að drengir séu verr staddir í skólanum heldur en stúlkurnar þegar kemur að námi og líðan innan kennslustofunnar og þurfi að huga betur að þeim í skólakerfinu. Þegar kemur að námi drengja er því hal...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Fanney Björg Rúnarsdóttir 1998-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2022
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/41826
Description
Summary:Staða drengja í skólakerfinu hefur verið mikið í umræðunni í samfélaginu. Háværar raddir hafa verið um að drengir séu verr staddir í skólanum heldur en stúlkurnar þegar kemur að námi og líðan innan kennslustofunnar og þurfi að huga betur að þeim í skólakerfinu. Þegar kemur að námi drengja er því haldið fram að þeir séu illa staddir þegar kemur að lestri og þurfi því að breyta aðferðum þar, rannsóknir hjá bæði PISA og Rannsókn og greining hafa verið gerðar á Íslandi og styðja þær þessa umræðu. Tölfræðin sýnir að drengjum líður verr í kennslustofunni en stúlkum og lesskilningurinn hjá þeim er einnig verri. Markmið þessarar rannsóknar er að kanna stöðu drengja í íslensku skólakerfi í dag. Ásamt því að fara yfir fyrirliggjandi gögn um stöðu drengja og stúlkna í íslenska skólakerfinu, voru tekin hálfstöðluð viðtöl við fjóra grunnskólakennara. Með viðtölunum er leitast við því að skyggnast inn í kennslustofuna og öðlast innsýn í upplifun kennara á líðan drengja í kennslustofunni og stöðu þeirra í skólakerfinu. Niðurstöður sýna að kennarar upplifa ekki þessa bágu stöðu drengja í kennslustofunni. Þátttakendur í rannsókninni finna ekki fyrir mun á lesskilningi eftir kynjunum, þrátt fyrir að rannsóknir sýna að drengir séu eftir á í lesskilningi, heldur upplifa þátttakendur frekar að heimilisaðstæður barnanna hafi meiri áhrif á lesskilning en kyn. The status of boys in the school system has been discussed in society. There have been voices that boys have it worse in schools compared to girls, when it comes to learning and the wellbeing within the classroom and that they need to be given more attention in the school system. When it comes to boys education, it is claimed that they are in a bad position when it comes to reading and therefore need to change teaching methods, research at both PISA and Research and Analysis has been done in Iceland and they support this discussion. The statistics show that boys feel worse in the classroom than girls and their reading comprehension is also worse. The aim of this study is to ...