Vistkerfaþjónusta borgarskóga og virði hennar

Fjöldi rannsókna hefur sýnt að trjágróður í og í grennd við þéttbýli hefur í för með sér fjárhagslegan, samfélagslegan og umhverfislegan ávinning. Þau gæði sem hljótast af vistkerfaþjónustu borgarskóga eru hins vegar jafnan veitt án endurgjalds. Slík tilhögun hefur löngum leitt til vanmats á virði þ...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Guðrún Sunna Jónsdóttir 1999-
Other Authors: Landbúnaðarháskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2022
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/41646
Description
Summary:Fjöldi rannsókna hefur sýnt að trjágróður í og í grennd við þéttbýli hefur í för með sér fjárhagslegan, samfélagslegan og umhverfislegan ávinning. Þau gæði sem hljótast af vistkerfaþjónustu borgarskóga eru hins vegar jafnan veitt án endurgjalds. Slík tilhögun hefur löngum leitt til vanmats á virði þjónustunnar þegar kemur að ákvarðanatöku, með tilheyrandi oft neikvæðum afleiðingum fyrir samfélög manna. Græn svæði sem gjarnan eru vaxin trjágróðri hafa þá í mörgum tilfellum verið látin víkja fyrir mannvirkjum. Þetta á ekki síst við um svæði með lágt útivistargildi. Skilningur á nauðsyn þess að taka tillit til vistkerfa og fjölþættrar þjónustu þeirra við ákvarðanatöku hefur aftur á móti aukist verulega á síðustu árum. Í samræmi við þá þróun hafa ríki, sveitarfélög og borgir, þ.á.m. Reykjavík, sett sér markmið um að verðmeta þjónustu eigin vistkerfa. Slíkt fyrirkomulag gerir samfélögum manna auðveldara að hagnýta vistkerfi jarðar á sem hagkvæmasta vegu. Í Reykjavík þar sem stefnt er að þéttari byggð má þannig meta hvort uppbygging á kostnað grænna svæða, þ.m.t. borgarskóga á borð við Kálfamóa, sé samfélaginu í hag eður ei. Í ritgerð þessari var leitast við að kanna í hverju vistkerfaþjónusta Kálfamóa felst. Niðurstöður sýndu að virði Kálfamóa er einkum fólgið í stuðnings- og búsvæðaþjónustu skógarins.