Construction project risk identification in Iceland: Professional’s perspective

Verksamningur er ein áhættusamasta viðskipta tegund sem til er með miklum líkum á mistökum af ýmsum ástæðum sem verktaki þarf að hafa í huga, bæði þegar hann býður í verkefni og á mismunandi stigum líftíma þess. Áhættu auðkenning í byggingarverkefnum er mikilvægt skref að velgengni verkefna en hefur...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Benjamín Þráinsson 1995-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:English
Published: 2022
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/41560
Description
Summary:Verksamningur er ein áhættusamasta viðskipta tegund sem til er með miklum líkum á mistökum af ýmsum ástæðum sem verktaki þarf að hafa í huga, bæði þegar hann býður í verkefni og á mismunandi stigum líftíma þess. Áhættu auðkenning í byggingarverkefnum er mikilvægt skref að velgengni verkefna en hefur ekki fengið alvarlega athygli margra verkefnastjóra og fyrirtækja um allan heim. Þessi ritgerð hefur auðkennt, lýst og flokkað 46 algengustu áhættuþætti á byggingarstigi framkvæmdaverkefna um allan heim. Meginmarkmið þessarar ritgerðar var að senda út könnun á íslenskra fagaðila sem vinna við verkefnastjórnun til þess að fá sýn þeirra á hverjar eru mikilvægustu áhættur á byggingarstigi framkvæmdaverkefna á Íslandi. Mikilvægi þeirra var metin með mikilvægis vísitölu eða Relative important index (RII) og áreiðanleiki gagnanna með áreiðanleikastuðullinum Cronbach’s alpha sem var reiknaður með forritinu Statistical Package for the Social Sciences (SPSS). Niðurstöður rannsóknarinnar raðar áhættunum frá sætum 1-46 eftir mikilvægi þeirra og topp tíu eftir mismunandi viðhorfum hópa af fagaðilum, eftir annars vegar starfstitlum og hins vegar fjölda ára reynslu. Greining var gerð með samanburði á við hverju mátti búast í niðurstöðum hennar á þeim tíma sem hún var send út. Þessi rannsókn hefur sínar takmarkanir þar sem ekki er hægt að greina allar áhættuþætti heldur aðeins þá mikilvægustu. Niðurstöðurnar geta nýst til frekari rannsókna, svo sem áhættugreiningar fyrir tiltekið verkefni, áhættu auðkenningu frá öðrum sjónarhornum eða áhættu gátlistinn þegar hafin er vinna við nýbyggingar á Íslandi. Construction contracting is one of the riskiest business types available, with a very high failure rate for various reasons, which needs consideration when a contractor creates his final price for a project and during the building life cycle at different stages. The importance of risk identification in construction projects is a critical step in risk management which is one of the keys to project success but still has not been given ...