Summary: | Ísstraumar gegna veigamiklu hlutverki fyrir stöðugleika meginjökla þar sem þeir skila frá þeim gríðarlegu magni af ís og seti og skilja eftir sig einkennandi landmótun. Ílöng jökulræn landform, m.a. jökulöldur (e. drumlins) og risakembur (e. mega scale glacial lineations), eru til marks um hratt streymi jökuls og tilvist ísstrauma. Þessi landform eru talin vera mikilvæg vísbending um streymi íss og innri gerð þeirra getur varpað ljósi á ríkjandi ferla á mótum íss og undirlags. Í þessu verkefni voru jökulöldur og risakembur í Bárðardal á Norðurlandi rannsakaðar með áherslu á innri gerð þeirra í því skyni að varpa ljósi á myndun þeirra og tengingu við fornan ísstraum innan íslenska meginjökulsins. Þrjár opnur voru kortlagðar og rannsakaðar með tilliti til skipanar setlaga, kornastærðar og ávala og kýlni korna, en þar að auki var lega landformanna kortlögð á grunni loftmynda og ArcticDEM hæðarlíkansins til að varpa ljósi á dreifingu landformanna og umfang hins forna ísstraums. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að jökulöldur og risakembur í Bárðardal samanstandi aðallega af flögóttum (e. fissile) jökulruðningi en einnig af fínkornóttu lagskiptu seti. Setlögin bera merki um talsverða hnígandi (e. ductile) aflögun. Það gefur líklega til kynna að vatnsþrýstingur undir ísstraumnum hafi verið hár og stuðlað að auknum skriðhraða. Um það bil 30% landformanna í Bárðardal hafa lengdarhlutfall 10:1 eða hærra og flokkast þar með sem risakembur, sem styðja við tilvist ísstraums á svæðinu. Dreifing landformanna bendir til þess að ísstraumurinn hafi verið að minnsta kosti 16 km breiður og 62 km langur. Rannsóknin gefur gott dæmi um tilvist og umfang ísstrauma undir íslenska ísaldarjöklinum og varpar ljósi á myndun landforma undir hraðskreiðum jöklum. Ice streams are important constituents of ice sheets as they drain massive amounts of ice and sediments to the margins and leave distinct geomorphological signatures on the ice sheet bed. Streamlined subglacial bedforms (SSBs), including drumlins and mega scale glacial ...
|