Greining prófatriðabanka úr samræmdum prófum í stærðfræði: Greining á dýpt atriðabanka

Menntun barna er mikilvæg fyrir þróun samfélags í heild sinni og þarf að sjá til þess að skólagangan sé að veita góða menntun. Menntamálastofnun (MMS) sér um skipulagningu á námsmati barna og sér til þess að gæði menntunar sé sem mest. MMS hefur séð um fyrirlögn á samræmdu könnunarprófum á landsvísu...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Bergsveinn Andri Halldórsson 1997-, Davíð Kolka 2000-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2022
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/41496
Description
Summary:Menntun barna er mikilvæg fyrir þróun samfélags í heild sinni og þarf að sjá til þess að skólagangan sé að veita góða menntun. Menntamálastofnun (MMS) sér um skipulagningu á námsmati barna og sér til þess að gæði menntunar sé sem mest. MMS hefur séð um fyrirlögn á samræmdu könnunarprófum á landsvísu til að kanna stöðu nemenda og hvort þeir nái ákveðnum hæfnisviðmiðum. Stöðugt er verið að reyna bæta námsmatið á Íslandi og nú stendur til að þróa aðlögunarhæft langtímapróf sem kæmi í stað samræmdra könnunarprófa. Markmiðið er að þróa lóðréttan kvarða þar sem allir nemendur væru metnir á sama kvarða. Til þess að þróa nýtt aðlögunarhæft próf þarf að vera til staðar góður prófatriðabanki með nægilegt magn af prófatriðum á mismunandi þyngdarbilum. Mikilvægt er að athuga hvort prófatriðin hafa nægilega mikla sundurgreiningu fyrir hvert þyngdarbil. Í þessari rannsókn er til skoðunar prófatriðabanki MMS með gögnum úr gömlum samræmdum prófum í stærðfræði sem á að nota í þróun á nýju prófi. Niðurstöðurnar í greiningu á prófatriðabanka þar sem flokkaskipting varð á þyngd og sundurgreiningu urðu að það þyrftu að vera fleiri prófatriði á báðum mörkum þyngdarbilsins auk prófatriða með meiri sundurgreiningu. Það á sérstaklega við í 7. bekk þar sem hlutfallsmunur við 10. bekk í efstu tveim sundurgreiningaflokkum var mikill. Fyrir framtíðarrannsókn væri hægt að skipta prófatriðum í bankanum eftir hlutum innan samræmda prófs í stærðfræði og skoða flokkaskiptingu þeirra. Möguleiki er á notkun fjölþrepasniðprófs sem virðist leysa vandamál sem geta komið með aðlögunarhæfu sniði. Education for children is important for the development of society and the school system must ensure that it is providing a good education. Menntamálastofnun (MMS) organizes the assessment of students in Iceland and ensures that the quality of education is as high as possible. MMS has overseen the execution of the Icelandic National Assessment Tests (i. Samræmdu könnunarpróf) which is an external assessment of how well the students score relative to their ...