Líkamleg virkni barna og ungmenna með Cerebral Palsy á Íslandi

Gildi reglulegrar hreyfingar fyrir líkamlega og andlega heilsu er vel þekkt fyrir alla, óháð aldri og líkamlegri getu. Hins vegar nær stór hluti barna og ungmenna ekki viðmiðum um ráðlagða hreyfingu til að ná heilsufarslegum ávinningi. Ekki hafa verið gerðar rannsóknir á líkamlegri virkni hjá börnum...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ástrós Hilmarsdóttir 1997-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2022
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/41451
Description
Summary:Gildi reglulegrar hreyfingar fyrir líkamlega og andlega heilsu er vel þekkt fyrir alla, óháð aldri og líkamlegri getu. Hins vegar nær stór hluti barna og ungmenna ekki viðmiðum um ráðlagða hreyfingu til að ná heilsufarslegum ávinningi. Ekki hafa verið gerðar rannsóknir á líkamlegri virkni hjá börnum með cerebral palsy (CP) á Íslandi. Erlendar rannsóknir hafa sýnt að líkamleg virkni barna og ungmenna með CP er minni samanborið við ófatlaða jafnaldra þeirra. Markmið þessarar rannsóknar var að bera saman líkamlega virkni barna og ungmenna með CP og ófatlaðra jafnaldra. Aðferðir: Tuttugu og tvö 8-16 ára börn með CP með grófhreyfifærni í flokkum I-III skv. Gross Motor Function Classification System (GMFCS) og 32 börn í hliðstæðum samanburðarhópi tóku þátt í rannsókninni. Líkamleg virkni var mæld hlutlægt með activPAL hreyfimælum sem þátttakendur höfðu á sér yfir eina viku. Þrjár helstu breyturnar voru skrefafjöldi á dag, tíma varið í líkamlega virkni af meðal eða mikilli ákefð og stöðubreytingar úr sitjandi í standandi stöðu. Blönduð dreifnigreining var notuð við tölfræðiúrvinnslu. Niðurstöður: Hóparnir tveir voru sambærilegir hvað varðar aldur, hæð, þyngd, líkamsþyngdarstuðul, kynjahlutfall og iðkun íþrótta. Ekki var marktækur munur á líkamlegri virkni mældri í skrefafjölda (p = 0,21), tíma varið í líkamlega virkni af meðal eða mikilli ákefð (p = 0,72) eða fjölda stöðubreytinga (p = 0,53). Marktækur munur var á öllum þremur breytunum á milli virkra daga og helga (p <0,001). Engin marktæk víxlhrif fundust milli hópa og daga vikunnar fyrir áhrif þeirra á skrefafjölda (p = 0,13), líkamlega virkni af meðal eða mikilli ákefð (p = 0,48) og stöðubreytingar (p = 0,48). Ályktun: Niðurstöðurnar benda til þess að líkamleg virkni barna og ungmenna með CP á Íslandi sé sambærileg líkamlegri virkni ófatlaðra jafnaldra þeirra. Þörf er á frekari rannsóknum til að staðfesta þessa niðurstöðu. The value of regular physical activity for physical and mental health is well known for everyone, regardless of age and physical ability. ...