Summary: | Í þessari lýsandi þversniðsrannsókn var leitast við að lýsa viðhorfi meðal notenda stoðkerfismóttöku sjúkraþjálfara á heilsugæslum á Íslandi og hvort tengsl voru við biðtíma, ráðleggingar og eftirfylgni. Stoðkerfismóttakan er snemmtæk íhlutun með ráðleggingum frá sjúkraþjálfara sem getur dregið úr veikindaleyfum og komið í veg fyrir að vandamál geti orðið langvinn. Þegar farið var af stað með rannsóknina var stoðkerfismóttakan á fjórum heilsugæslum á Íslandi. Rafræn þjónustukönnun var send til 1309 einstaklinga sem sótt höfðu stoðkerfismóttöku sjúkraþjálfara á tímabilinu 1.september 2020 til 31.ágúst 2021. Könnunin innihélt 12 spurningar þar sem spurt var um viðhorf notenda stoðkerfismóttöku sjúkraþjálfara á heilsugæslum og hvort biðtími, ráðleggingar og eftirfylgni höfðu áhrif á ánægju notenda. Mikilvægt er að fá þessar upplýsingar til að geta rökstutt þörf fyrir slíka þjónustu og hvort það sé eitthvað sem mætti betur fara til að bæta gæði þjónustunnar og bæta viðhorf skjólstæðinga. Niðurstöður sýndu að um 88% voru mjög og frekar ánægðir með þjónustu sjúkraþjálfara á stoðkerfismóttökum. Enginn marktækur munur var á viðhorfi eftir því hversu lengi notendur biðu eftir þjónustu (p = 0,238) og hvort notendur fengu ráðleggingar eða ekki (p = 0,051) en það var marktækt jákvæðara viðhorf hjá þeim sem fengu eftirfylgni (p < 0,001). Niðurstöður benda því til þess að viðhorf til þjónustunnar sé gott. Biðtími og hvort notendur fái ráðleggingar eða ekki hafði engin áhrif á viðhorf, en það að notendur fengu eftirfylgni hafði áhrif á það hversu ánægðir þeir voru með þjónustuna. This descriptive cross sectional study was conducted to describe the experience among users of the musculoskeletal physiotherapy services in health care centres in Iceland and whether there is any correlation to waiting time, advice given and follow-up. It is important to find out this information to be able to justify the need for such services and to see whether there is anything that can be done to increase the quality and experience of the ...
|